Vinna er hafin við að byggja upp innviði fyrir Borgarlínu við Nauthólsveg og Háskólann í Reykjavík.
Breikka á Nauthólsveg og koma þar fyrir sérrými fyrir Borgarlínu á miðri götu. Áfram verður ein akrein fyrir almenna umferð í báðar áttir. Breytingin er sú að þær verða í framtíðinni hvor til sinnar hliðar við Borgarlínu.
Tryggja á aðgengi fyrir akandi, hljólandi, gangandi og almenningssamgöngur allan framkvæmdatímann. Stoppistöðvar Strætós verða opnar allan tímann en færðar eftir því sem verkinu vindur fram. Betri samgöngur segja að áhrifum á bílastæði verði haldið í lágmarki.