Teiknimynd um sundferðir ungs innflytjanda á Íslandi og þörfina fyrir félagsleg tengsl hlaut fyrstu verðlaun í flokki stuttmynda á virtri franskri kvikmyndahátíð. Leikstjóri og handritshöfundur byggir söguþráðinn að hluta til á eigin reynslu.
„Myndin var frumsýnd í Annecy í Frakklandi, bara núna í júní, og það var frábært af því að Annecy er stærsta animation-hátíð í heiminum,“ segir Fan Sissoko, kvikmyndagerðarkona.
Þarf að bíta á jaxlinn til að bráðna ekki ofan í sundlaugina
Fan Sissoko skrifaði handritið, teiknaði persónurnar og leikstýrði teiknimyndinni Sundruð sem hlaut á dögunum fyrstu verðlaun í flokki stuttmynda á hinni virtu hátíð Annecy Animation Festival í Frakklandi. Myndin fjallar um Neemu, ungan innflytjanda á Íslandi, sem upplifir félagslegt tengslaleysi í vikulegum sundferðum sínum. Hún þarf oft að bíta á jaxlinn til að hreinlega bráðna ekki ofan í sundlaugina. Fan ólst upp í Frakklandi, á franska móður og malískan föður. Hún hefur búið á Íslandi í sex ár og byggir sögu myndarinnar að hluta til á eigin reynslu.
„Þessi tilfinning að þú sért ekki viss um hvort þú megir vera hérna, hvort þú megir vera á staðnum af því að fólk lætur þig vita að þú sért öðruvísi eða að þú tilheyrir ekki. Þetta er tilfinningin sem ég vildi kanna með myndinni,“ segir Fan Sissoko og bætir við að hún tengi oft við þá tilfinningu sjálf.
Fan segir teiknimyndina vera skáldskap en þó að nokkru leyti byggð á hennar eigin reynslu.
„Þetta er saga sem ég bjó til, ég er ekki karakterinn en það er mjög margt sem ég hef upplifað, eða sem ég hef séð eða heyrt frá fólki, sem ég setti hér inn.“
Hugmyndin kom í sundferð á Íslandi fyrir 20 árum
Hugmyndin að staðsetningu sögunnar kviknaði þegar Fan kom fyrst til Íslands fyrir 20 árum og fór í Laugardalslaugina.
„Ég var að synda og ég sá umhverfið speglast í vatninu á meðan ég var að synda og ég hugsaði að ef ég ætlaði að búa til teiknimynd ætti hún að gerast í sundi og að ég vildi hafa þetta móment í henni. Þetta voru svona fræin en þegar við fluttum hingað, það eru sex ár síðan, byrjaði ég að skrifa söguna og þetta þróaðist út frá því.“
Notar ekki grænan til að gera umhverfið ónáttúrulegt
Fan notar liti og áferð til að mynda hughrif.
„Ég ákvað mjög snemma að hafa ekkert grænt til að umhverfið yrði svolítið ónáttúrulegt. Þetta er nýtt umhverfi fyrir henni og ég nota helst blátt og rautt. Litirnir og textúrinn, eins og til dæmis gufan, snjórinn, rigningin og vatnið, þetta er notað til að sýna hvernig henni líður.“
„Við eigum öll jörðina saman“
Fan fannst mjög áhugavert hugsa sundlaugina sem samantekt á íslensku samfélagi, setja svo utanaðkomandi manneskju inn í aðstæðurnar og sjá hvað gerist. Hún segir umhverfið vera áhugavert og fyndið á köflum en einnig fallegt.
„Með myndinni vildi ég segja að við erum öll fólk, við eigum öll jörðina saman og það meikar ekki sens fyrir mér að aðgreina hver má vera hér, hver má ekki vera hér, hver má tala, hver má ekki tala, hver má vera sýnileg, hver má ekki vera sýnileg. Við erum öll bara fólk sem erum að reyna að lifa lífinu okkar og þurfum að deila jörðinni. Við erum þar sem við erum bara fyrir tilviljun.“
Þau sem komu að gerð myndarinnar
Handrit, persónusköpun og leikstjórn: Fan Sissoko.
Aðalhlutverk: Halldóra Geirharðsdóttir, Grace Seri og Yves-Marina Gnahoua.
Framleiðendur: Heather Millard hjá Compass Films á Íslandi og Stéphanie Launay hjá Komawé í Frakklandi í samframleiðslu við belgíska fyrirtækið Artémis Productions.
Meðframleiðandi: Julien Melebeck.
Yfirframleiðandi: Þórður Jónsson.
Stjórn teikningar: Raphaelle Prud'Homme.
Tónlist: Hafdís Bjarnadóttir.
Hljóðhönnun: Ingrid Simon.
Alþjóðleg sala og dreifing: SUDU Connexion.
Sundruð var styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands auk CNC, Fédération Wallonie-Bruxelles, Creative Europe MEDIA, félags- og húsnæðismálaráðuneyti Íslands, Procirep, Angoa, Tax Shelter Belgium og samfélagsstyrkjum Landsbankans.