Fram styrkti stöðu sína í þriðja sæti Bestu deildar karla í fótbolta með sigri á Breiðabliki, 4:3, á heimavelli sínum í 9. umferðinni í kvöld.
Framarar eru nú með 20 stig, fimm stigum á eftir toppliði Víkings og tveimur á eftir KR. Breiðablik er í fjórða sæti með 15 stig.
Kennie Chopart byrjaði með látum í kvöld og var sá danski búinn að skora tvö mörk eftir aðeins fimm mínútur og koma Fram í 2:0.
Ívar Örn Árnason minnkaði muninn á 31. mínútu en tíu mínútum síðar skoraði Freyr Sigurðsson og voru hálfleikstölur 3:1.
Jakob Byström gerði fjórða mark Fram á 55. mínútu og virtust heimamenn ætla að vinna öruggan sigur.
Sú varð ekki raunin því Kristófer Ingi Kristinsson skoraði á 60. mínútu og aftur á 69. mínútu en nær komust Blikar ekki.