Franska þingið hefur samþykkt frumvarp sem bannar aðgang barna undir 15 ára aldri að samfélagsmiðlum. Verður Frakkland þar með fyrsta landið innan Evrópusambandsins til að setja þessi lög. Vaxandi fjöldi landa grípur nú til aðgerða til að takmarka aðgang að samfélagsmiðlum innan um vaxandi viðvaranir um skaðleg áhrif þeirra á börn.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti fagnar banninu sem hann hefur barist fyrir og hefur heitið því að framfylgja því fyrir septembermánuð, að því er franski miðillinn La Monde greinir frá.
„Frakkland vísar veginn í Evrópu þegar kemur að því að vernda börnin okkar og unglinga,“ sagði Macron í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum, þar sem hann fagnaði „stóru framfaraskrefi“.
Þingmenn úr efri og neðri deild franska þingsins náðu samkomulagi um efnisatriði frumvarpsins í gær, sem gerði þeim kleift að greiða lokaatkvæði um það. Frumvarpið var samþykkt í dag með yfirburðum í öldungadeildinni (Sénat) með 243 atkvæðum gegn tveimur. Síðar samþykkti franska þjóðþingið (Assemblée Nationale) frumvarpið sem lög með 279 atkvæðum gegn 81, þrátt fyrir gagnrýni úr röðum vinstrimanna.
Bannið verður innleitt í tveimur skrefum. Börnum undir 15 ára verður meinað að stofna nýja aðganga frá og með 1. september og bannið mun síðan gilda um aðganga sem eru nú þegar í notkun frá og með janúar 2027, samkvæmt löggjöfinni.