Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að umferðarstýring verði á svæðinu meðan á framkvæmdum stendur. Vegfarendur eru beðnir að aka með gát og virða merkingar.
Þá verður Vesturlandsvegur einnig lokaður í norðurátt við Þingvallaveg frá klukkan 21 í kvöld til klukkan 7:00 á mánudagsmorgun samkvæmt tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Ökumenn sem koma að norðan geta ekið veginn í suðurátt meðfram vinnusvæðinu en þeir eru beðnir um að aka varlega og virða merkingar.
Hjáleið verður um Þingvallaveg, Kjósarskarðsveg og Hvalfjarðarveg á meðan.