Handknattleikskonan Þóra Björg Stefánsdóttir hefur samið við Hauka um að leika með liðinu í úrvalsdeild kvenna en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Þóra kemur til liðs við Hauka frá norska liðinu IL Rival þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö ár en hún uppalin í Vestmannaeyjum hjá ÍBV og lék með þeim áður en hún hélt til Noregs.
„Það er mjög ánægjulegt að vera orðinn leikmaður Hauka. Mér líst vel á þjálfarann og umgjörðina og er mjög spennt fyrir komandi tímabili með stelpunum," er haft eftir Þóru í tilkynningunni.
