Það stefnir í sannkallaða fótboltaveislu í miðbæ Selfoss á næstu vikum þegar stór risaskjár verður settur upp fyrir stuðningsfólk sem vill upplifa leikina á HM í góðum félagsskap undir berum himni.
Skjárinn hefur verið fastur liður undanfarin sumur þegar stórmót eru í gangi og vinsældirnar aukist með hverju árinu. Á leikdögum hefur Brúartorg fyllst af fólki á öllum aldri, allt frá heimamönnum til ferðamanna sem stoppa við til að njóta stemningarinnar. Fastlega má búast við að slíkt verði einnig uppi á teningnum nú í sumar, eins og kemur fram í tilkynningu.
„Það myndast alltaf sérstök tilfinning þegar hundruð manns fylgjast saman með leikjum á torginu. Fólk hittist, spjallar, borðar saman og fagnar mörkunum eins og það sé á vellinum sjálfum. Þetta er orðið einn af skemmtilegustu sumartengdu viðburðunum í miðbænum,“ segir Davíð Lúther Sigurðarson hjá Miðbæ Selfoss.
Veitingastaðirnir í kringum torgið verða vel undirbúnir fyrir gestaganginn og boðið verður upp á fjölbreytt úrval matar og drykkja á meðan leikjum stendur. Þá verður einnig hægt að tryggja sér sæti á völdum stöðum fyrir þá sem vilja njóta leikjanna með aðeins meira næði og þægindum en það eru Mar Seafood sem hafa borð og Miðbar sem er með rooftop svæði.
Davíð segir að reynslan sýni að veðrið skipti öllu máli.
„Þegar sólin lætur sjá sig fyllist svæðið á ótrúlega skömmum tíma. Við erum því að fjölga sætum og undirbúa okkur fyrir mikla aðsókn. Það er greinilegt að fólk hefur gaman af því að sameinast yfir fótboltanum og skapa þessa stemningu saman.“
Spurður um sitt uppáhaldslið á mótinu þarf Davíð ekki langan umhugsunarfrest.
„Portúgal hefur átt mitt hjarta í rúm tuttugu ár. Ég varð mikill aðdáandi á Figo tímanum og hef fylgt liðinu síðan. Nú held ég að loksins sé komið að því að þeir lyfti bikarnum. Ég ætla allavega ekki að veðja gegn þeim.“
Davíð býst við líflegu sumri þar sem fótboltinn verður í aðalhlutverki á Brúartorgi og markmiðið er einfalt: að skapa vettvang þar sem fólk getur komið saman, notið leikjanna og upplifað stórmótið í góðum félagsskap.