„Okkur líst heilt yfir vel á árangurinn sem við náðum á öðrum ársfjórðungi. Það eru ytri þættir sem hafa áhrif, fyrst og fremst hækkun á eldsneytisverði sem var mjög mikil á þessu tímabili. En varnir sem við höfum og varnarstefnan okkar milda það eitthvað.“
Þetta segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Uppgjör annars fjórðungs flugfélagsins var birt í dag. Félagið tapaði fjórum milljörðum króna á tímabilinu þrátt fyrir að tekjur hafi aukist um 7% frá síðasta ári. Hækkandi kostnaður skýrir tapið.
„Eldsneytiskostnaðurinn hækkar verulega milli ára. Fyrir utan það gekk reksturinn vel í fjórðungnum, tekjumyndun mjög sterk og undirliggjandi rekstur er betri á milli ára ef við tökum eldsneytiskostnað út fyrir sviga.“
Bogi Nils segir ársfjórðungsuppgjörið í takt við afkomuspá sem gefin var út fyrr á árinu.
„Fjárhagsstaða félagsins er mjög sterk og lausafjárstaðan gríðarlega góð. Þannig að við höfum mjög sterk tól og tæki til að takast á við þær áskoranir sem alltaf koma upp og ekki síður til að grípa tækifærin sem eru framundan. Við gerum ráð fyrir því að þriðji ársfjórðungur verði betri heldur en í fyrra. Við skiluðum ágætis hagnaði í fyrra en gerum ráð fyrir að hagnaðurinn á þriðja ársfjórðungi verði enn meiri þrátt fyrir talsvert hærra olíuverð.“
Drógu úr framboði en sætanýting var betri
Farþegafjöldinn jókst um 2% frá því í fyrra en þá voru tvö íslensk flugfélög í rekstri. Icelandair dró aðeins úr framboði vegna eldsneytisverðs en Bogi segir sætanýtingu betri fyrir vikið. Hækkanir á fargjöldum út af hærra eldsneytisverði hafi ekki haft teljandi áhrif á eftirspurn.
Bogi Nils segir bókunarstöðu mjög sterka fyrir þriðja ársfjórðung.
„Það er mikil eftirspurn í kringum sólmyrkvann núna í ágúst og útlitið bara heilt yfir fyrir þriðja ársfjórðung er gott.“
Kjaraviðræður halda áfram
Icelandair á í kjaraviðræðum við stéttarfélög flugfreyja, flugvirkja og flugmanna. Félagið skrifaði undir yfirlýsingu með Félagi íslenskra atvinnuflugmanna í júní eftir tillögu frá ríkissáttasemjara. Síðan þá hefur viðræðunum lítið miðað áfram.
„Síðan virðist samtalið á ágætis stað hvað varðar flugfreyjur og flugþjóna. Flugvirkjar lýstu yfir árangurslausum viðræðum fyrir einhverjum vikum og síðan hafa einhver samtöl átt sér stað. Það er svona staðan í þessum þremur samningaviðræðum. Þetta verkefni fer ekkert frá okkur. Við verðum að semja með farsælum hætti sem bæði tryggir samkeppnishæfni félagsins og líka að við munum áfram bjóða upp á eftirsótt störf hér hjá Icelandair.“