Starfsmönnum Kjarnafæðis Norðlenska var tilkynnt í morgun að Ágúst Torfi Hauksson léti af störfum sem forstjóri fyrirtækisins í lok mánaðarins. Hann hefur verið forstjóri síðan fyrirtækið varð til 2021 við sameiningu Norðlenska og Kjarnafæðis. Þar á undan var hann framkvæmdastjóri Norðlenska frá 2015.
Gunnlaugur Eiðsson aðstoðarforstjóri tekur við störfum Ágústar á meðan annað er ekki ákveðið, segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Árið 2024 keypti Kaupfélag Skagfirðinga fyrirtækið og segir í tilkynningu Kjarnafæðis Norðlenska að það hafi verið „upphafið að enn frekari hagræðingu, neytendum og bændum til heilla.“
Fréttastofa náði ekki í Ágúst Torfa en í fréttatilkynningunni frá Kjarnafæði Norðlenska er haft eftir honum: „Þessi ár hjá KN og Norðlenska hafa verið lærdómsrík og gefandi. Hjá fyrirtækinu starfar afar samheldinn og góður hópur sem hefur staðið sig mjög vel á umbreytingatímum. Á þessum árum höfum við náð að hagræða mikið, sameina Kjarnafæði og Norðlenska og loks selja sameinað fyrirtæki til nýrra eigenda sem hafa skýra framtíðarsýn. Ég kveð Kjarnafæði Norðlenska, stjórnina, samstarfsfólkið og ekki síst þá fjölmörgu bændur sem ég hef verið í reglulegum samskiptum við öll þessi ár, með kærri þökk fyrir samstarfið.“