Forsetinn biður um refsingu gegn fréttakonu
Donald Trump Bandaríkjaforseti biður Fjarskiptastofnun að refsa fréttakonu, sem hann segir vera „ógn við land okkar“.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði í gær þekktum fréttamanni NBC hugsanlegum viðurlögum af hálfu bandarískra fjölmiðlayfirvalda. Forsetinn sagðist ósáttur við umfjöllun um árangur frambjóðenda sem hann hefur lýst stuðningi við fyrir þingkosningarnar í nóvember.
Trump réðst á Kristen Welker á samfélagsmiðlinum Truth Social og kallaði hana „óvinsælan ‘þáttastjórnanda’ hins áður frábæra spjallþáttar Meet the Press“.
Hann mótmælti því að hún hefði sagt að stuðningsyfirlýsingar forsetans við frambjóðendur í prófkjörum flokkanna hefðu skilað „misjöfnum árangri“. Trump fullyrti að frambjóðendur hans hefðu borið sigur úr býtum í 98 til 100 prósentum tilvika.
Welker sagði í samtali við svæðisbundna sjónvarpsstöð NBC snemma í gær að Trump myndi „varpa stórum skugga á þingkosningarnar“.
Um stuðningsyfirlýsingar hans sagði hún að þær hefðu „skilað misjöfnum árangri, en nú síðast vann Darline Graham öldungadeildarþingmaður, sem hann studdi, sigur í prófkjöri sínu“.
Trump sagði að „vegna þessarar vísvitandi ónákvæmni verði hún kærð til FCC og krafist áminningar eða …