Fyrir kosningasigur Tisza-flokks Magyar hafði Fidesz-flokkur Viktors Orbán haldið um stjórnartaumana í sextán ár. Flokkurinn hafði á valdatíð sinni mótað margar stofnanir hins opinbera eftir eigin höfði og komið stuðningsfólki Orbán fyrir innan stjórnkerfisins. Ný ríkisstjórn Magyar hefur, frá því hún tók við völdum, leitast við að vinda ofan af stjórnkerfisbreytingum fyrri ríkisstjórnar og var markmið hennar að víkja Sulyok forseta úr embætti hluti af því.
Ríkisstjórnin fékk forsetanum vikið úr embætti með því að samþykkja viðauka við stjórnarskrá. Lagabreytingin var samþykkt á mánudag og hafði forsetinn fimm daga til að undirrita lögin. Það gerði hann í dag og hefur þannig samþykkt að láta af völdum. Hefði hann ekki gert það hefði líklega komið upp stjórnlagakreppa í landinu.
Í yfirlýsingu sakar Sulyok ríkisstjórnina um aðför gegn réttarríkinu. Viktor Orbán, fyrrum forsætisráðherra, sakar ríkisstjórnina um alræðistilburði og hvetur til mótmæla. Orbán hefur lítið sést opinberlega frá kosningaósigrinum og hefur neitað að taka sæti á þingi.
Forsætisráðherrann Magyar hafði frá því að hann tók við embætti hvatt forsetann til að segja af sér.