Forsætisráðherra sakar Musk um að kynda undir reiði vegna morðsins
Keir Starmer, leiðtogi Bretlands, sakar Elon Musk um að „reyna að kynda undir sundrungu“ í Bretlandi, auk þess að dreifa lygum og rangfærslum. Reiði er í fólki vegna viðbragða lögreglu við morði á námsmanni.
Keir Starmer, leiðtogi Bretlands, sakar Elon Musk um að „reyna að kynda undir sundrungu“ í Bretlandi í kjölfar reiði vegna viðbragða lögreglu við morði á hvítum námsmanni sem framið var af síka.
Mál hins 18 ára gamla Henry Nowak, sem var handjárnaður af lögreglu þar sem hann lá helsærður eftir að hafa verið stunginn af Vickrum Digwa, 23 ára, í borginni Southampton í suðurhluta landsins í desember, hefur skapað pólitísk átök í Bretlandi.
Árásarmaðurinn, Digwa, laug og sagði lögreglu að hann væri fórnarlambið og að Nowak hefði beitt hann kynþáttaníði.
Hægri öfgamenn hafa gripið morðið á lofti sem dæmi um að lögregluyfirvöld í Bretlandi komi öðruvísi fram við hvítt fólk en fólk af þjóðernisminnihlutum, ásökun sem ríkisstjórn Verkamannaflokksins undir forystu Starmer og lögreglustjórar neita harðlega.
Musk, eigandi X, hefur ítrekað tjáð sig þar um viðbrögð lögreglu við hnífstungunni. Í einni færslu spurði hann hvort fólk vissi að „opinber stefna …