Forstjóri Lyfjastofnunar segir innflutning ólöglegra peptíða hingað til lands mikið áhyggjuefni. Fólk eigi ekki að kaupa lyf sem því sé ekki ávísað.
Sýnishorn af ólöglegum peptíðum sem tollgæslan lagði hald á og sendi til greiningar erlendis innihéldu mikil óhreinindi. Ómögulegt var að staðfesta hvort hluti sýnishornanna innihéldi virku lyfjaefnin sem þau voru sögð innihalda.
Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segir notkun efna af þessu tagi sérlega varasama.
„Í fyrsta lagi var mjög lítið af peptíðum í því sem sagt var að væri peptíð. Það voru mjög mikil óhreinindi sem voru einhver efni sem maður veit ekki hvað er. Þetta getur valdið miklum aukaverkunum og haft áhrif á til dæmis lifur og nýru. Og þetta er sérstaklega hættulegt þegar fólk er að sprauta sig, sem virðist vera það sem það ætlar sér,“ segir Rúna.
Mikilvægt er að vara fólk við þeim hættum sem fylgja því að kaupa ólöglegt efni á netinu, segir Rúna. Engin leið sé að vita með vissu hvað sé í þeim. Þess utan sé ólöglegt að kaupa og selja slík efni.
„Það er alveg ljóst að þetta er áhyggjuefni og þess vegna erum við að vekja athygli á þessu. Fólk á ekki að kaupa lyf eða það sem það telur vera lyf á netinu. Það á yfirhöfuð ekki að vera að kaupa lyf sem því er ekki ávísað,“ segir Rúna.
„Svo virðist vera mikið framboð af þessu og mikið verið að tala um þetta á samfélagsmiðlum. Þess vegna erum við að vara sérstaklega við þessu og tala til foreldra og þeirra sem umgangast ungmenni sem horfa og kaupa þetta á netinu og halda að þetta sé frábært.“