Dýragarðurinn í Chongqing í suðvesturhluta Kína hélt einkar krúttlega afmælisveislu á miðvikudag. Hún var haldin í tilefni af fjögurra ára afmæli risapöndutvíburanna Yuke og Yu’ai sem búa í garðinum.
Birnirnir gæddu sér á afmæliskökum úr ávöxtum og grænmeti og fengu tígristuskudýr í afmælisgjöf.
Fjölmargir gestir lögðu leið sína í garðinn til að vera við veisluna. Þeir skemmtu sér vel, rétt eins og tvíburarnir.