Lögreglan á Norðurlandi vestra vekur athygli á því að næstu nótt verði gríðarlega stór hús flutt landleiðina eftir þjóðvegi 1.
Upphaflega var áætlað að lagt yrði af stað klukkan 2 í nótt frá Dæli í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu í fylgd lögreglu og ekið sem leið lægi upp í Öxnadal þar sem þau verða loks sett niður í Engimýri, en búist er við því að einhverjar tafir verði á flutningunum.
Húsin eru það stór að engin farartæki munu geta mætt þeim á leiðinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Af þeim sökum verða vegir lokaðir þar sem nauðsyn krefur á meðan á flutningunum stendur.
Ekki kemur annað fram um húsin sem flutt verða en flennistærð þeirra.
Sérstaklega er óskað eftir því að flutningafyrirtæki, atvinnubílstjórar og aðrir vegfarendur sem kunna að vera á ferðinni á þessum tíma taki tillit til flutningsins við skipulag ferða sinna, og biður lögregla vegfarendur um að sýna þolinmæði og virða fyrirmæli lögreglu og fylgdarmanna á leiðinni.
Fréttin hefur verið uppfærð með nánari upplýsingum frá lögreglu.