Framkoma Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, í fjölmiðlum er ekkert annað en tilraun til að varpa eigin mistökum yfir á aðra.
Þetta skrifar flugmaðurinn Ólafur Pétursson í færslu á Facebook og vitnar þar í orð Boga um að flugmenn félagsins haldi því í gíslingu með óformlegum verkfallsaðgerðum.
„Mig langar að leyfa ykkur að skyggnast aðeins inn í líf flugmanns. Flugmannsstarfið er ekki 9-5 vinna eins og allir gera sér grein fyrir,“ segir hann í upphafi færslunnar.
Laun fryst í þrjú ár
„Þegar samningar voru lausir 2020 þá voru gerðir samningar við Icelandair sem hljóðuðu upp á 25% kjaraskerðingu ásamt því að búa til rýmri ramma fyrir félagið til þess að nýta okkur 22% meira ofan á þáverandi vinnu,“ segir hann.
Samið var um 5 ára samning þar sem laun skyldu fryst í þrjú ár til að koma félaginu í gegnum Covid-tímabilið.
„Það var samið um að gera 5 ára samning því félagið þyrfti að selja fjárfestum þá hugmynd að koma með auka fjármagn inn á Covid-tímanum. Á þessum 5 ára samningi vorum við í launafrosti í 3 ár og svo tóku við 90% af launavísitölu 3 stétta í landinu.”
Birti 24 daga vinnuskrá
Ólafur birti svo vinnuskrá sem hann vann eftir á 24 daga tímabili:
- Sunnudagur: Munich, fram og til baka. Mætt í vinnu 06:00. Kominn í Hafnarfjörð 17:12.
- Mánudagur: Helsinki fram og til baka. Mætt í vinnu 06:00. Kominn í Hafnarfjörð 17:13.
- Þriðjudagur: Berlín fram og til baka. Mætt í vinnu 06:00, kominn í Hafnarfjörð 16:34.
- Miðvikudagur: París fram og til baka. Mætt í vinnu 06:00, kominn í Hafnarfjörð 16:39.
- Fimmtudagur: hvíldardagur
- Föstudagur: Billund fram og til baka. Flug tekið af vegna vélabreytingar 2 tímum fyrir settan vinnutíma.
- Laugardagur: New York seinni banki, mætti í vinnu 20:20, lenti í NY 04:39 eftir miðnætti.
- Sunnudagur: Hvíld í New York. Mættur í pickup 00:45 aðfaranótt
- Mánudagur (hvíld samtals 17 klst. 44 mínútur).
- Mánudagur: Flogið heim yfir nóttina og kominn í Hafnarfjörð 09:29 um morguninn
- Þriðjudagur: hvíld.
- Miðvikudagur: Varavakt 12:00–24:00
- Fimmtudagur: Kallaður út á varavakt til Osló. Mætti til vinnu 06:10, kominn í Hafnarfjörð 16:56.
- Föstudagur: Var skráður á varavakt. Tilkynnti veikindi þar sem sólarhringurinn var kominn í rugl og náði ekki að sofa.
- Laugardagur: Hvíldardagur.
- Sunnudagur: Zurich fram og til baka. Mættur í vinnu 06:00 og kominn í Hafnarfjörð 16:56.
- Mánudagur: Berlin. Mætt til vinnu 06:00, endar í gistingu í Berlín vegna veðurs heima.
- Þriðjudagur: Flogið heim frá Berlín um morguninn. Kominn í Hafnarfjörð 11:26.
- Miðvikudagur: New York. Mætt til vinnu 15:20, komið inn á hótel 23:52
- Fimmtudagur: Hvíld í New York. Mættur í pickup 22:00 (hvíld 22 klst. 8 mínútur).
- Föstudagur: Flogið heim yfir nóttina og kominn í Hafnarfjörð 07:06
- Laugardagur: Hvíld.
- Sunnudagur: New York. Mætt til vinnu 15:20, kominn inn á hótel 00:05 eftir miðnætti.
- Mánudagur: Hvíld í New York. Mættur í pickup 22:05 (hvíld 22 klst.).
- Þriðjudagur: Flogið heim yfir nóttina, kominn í Hafnarfjörð 07:57.
„Yfir allt þetta tímabil, ekki einn einasti frídagur,“ skrifar hann.
Ekki nema tveggja vikna fyrirvari
Hann segir flugmenn eiga rétt á níu frídögum í mánuði sem og einu helgarfríi. Þeir hafi þó ekkert með það að segja hvenær þeir taka þá frídaga. Þeir geti óskað eftir ákveðnum dögum eða helgi en það er ekkert í hendi.
„Um miðjan hvern mánuð (14 dögum fyrir mánaðarmót) fær svo flugmaðurinn í hendurnar hvernig hann er að vinna næsta mánuð. Þannig er fyrirsjáanleiki með afmæli, útskriftir, matarboð og fleira aðeins 2 vikur.“
Þetta geri það að verkum að þegar flugmenn eru orðnir þreyttir og kjósi að vera heima á frídögum sínum sé þeim kennt um að þeir séu ekki að mæta á þessum fáu frídögum sem þeir eiga.
„Þegar frídagar starfsmanna eru orðnir forsenda þess að flugáætlun gangi upp, þá eru þeir hættir að vera frídagar og orðnir hluti af rekstrarmódelinu,“ skrifar Ólafur.
„Að forstjóri og hans félagar komi svo í fjölmiðlum og segi að þetta sé allt flugmönnum að kenna. Að þeir séu með félagið í gíslingu þegar þeir eru sjálfir búnir að skapa þetta ástand er ekkert annað en tilraun til að varpa eigin mistökum yfir á aðra.“
Ítrekað varað við stöðunni
Hann segir Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) ítrekað hafa varað við stöðunni.
„ Flugum hefur verið fjölgað ár eftir ár án þess að flugmannafjöldi hafi haldið í við þá aukningu. Í stað þess að byggja upp nægilega mönnun hefur félagið reynt að mæta vextinum með sífellt meiri nýtingu flugmanna og færri stöðum til þess að manna varavaktir.“
Að lokum segir hann að flugmenn séu ekki orsök niðurfellinga vegna manneklu, þeir séu einfaldlega að nýta þá frídaga sem þeir eigi rétt á.
„Mannekla verður ekki til vegna þess að flugmenn taka sér frí. Hún verður til þegar stjórnendur skipuleggja rekstur sem gengur aðeins upp ef flugmenn selja frídagana sína. Ef áætlunin hrynur þegar fólk velur að vera heima í staðinn fyrir að selja þá fáu daga sem það fær, þá er vandamálið ekki flugmennirnir heldur yfirmennirnir og flugáætlunin sjálf.“