Flugi Icelandair til Zürich í Sviss klukkan 7:20 í morgun var aflýst þar sem ekki tókst að manna áhöfn. Þetta staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair.
Icelandair hefur aflýst nærri 40 flugferðum vegna manneklu frá því að kjaradeilu við flugmenn var vísað til ríkissáttasemjara.
Ásdís segir ekki hægt að segja til um hvort fleiri flugferðum verði aflýst í dag. Ekki sé þó útlit fyrir það eins og er.