Flugfreyjur og flugþjónar víða um heim segja óæskilegar snertingar af hálfu farþega vera orðið vaxandi vandamál í farþegaflugi.
Sumir segjast reglulega verða fyrir því að farþegar poti í þá, grípi í þá eða jafnvel klípi þá til að ná athygli þeirra á meðan á flugi stendur.
Michelle Montez, sem starfað hefur sem flugfreyja í tvo áratugi, segir slíka hegðun svo algenga að það sé nánast undantekning ef hún þarf ekki að takast á við hana.
Hún ræddi málið í hlaðvarpinu Jumpseat Chronicles ásamt flugþjónunum Joshua Boyd og Darion Foy en New York Post fjallaði um viðtalið á dögunum.
Að sögn Foy er þetta vandamál sem starfsfólk allra flugfélaga kannast við. Hann segir að hann hafi ítrekað orðið fyrir óviðeigandi snertingum frá farþegum, þar á meðal að vera klipinn í rassinn.
Flugþjónarnir segja að einföld lausn sé til staðar fyrir farþega sem vilja ná athygli áhafnarinnar: að nota kallhnappinn eða einfaldlega tala við starfsfólkið. Boyd sagði í hlaðvarpinu að hann kysi mun frekar að farþegar ýttu á kallhnappinn en að þeir snertu hann til að ná athygli hans.
„Þið þurfið ekki að snerta mig til að fá aðstoð. Ég vil bara heyra í ykkur,“ sagði hann.
Málið snýst þó ekki eingöngu um óþægindi. Flugþjónar benda á að brot á persónulegum mörkum geti í sumum tilvikum þróast yfir í alvarlegri atvik og það sé eðlilegt að starfsfólk sé með varann á sér.
Í frétt New York Post er rifjuð upp frásögn bresku flugfreyjunnar Chloe Harrison hjá Ryanair sem greindi frá því að hún hefði orðið fyrir ítrekuðu áreiti frá ölvuðum knattspyrnuáhugamönnum í flugi frá Manchester til Barcelona árið 2023.
Farþegarnir hafi hrópað að henni kynferðisleg ummæli og einn þeirra hafi að sögn boðið henni kynlíf.
Flugþjónar segja mikilvægt að farþegar geri sér grein fyrir því að starfsfólk um borð sé í vinnu og eigi rétt á sömu virðingu og starfsfólk í öðrum þjónustustörfum. Þeir hvetja ferðalanga til að virða persónuleg mörk og nota hefðbundnar leiðir til að kalla eftir aðstoð.