Flokkur fólksins kynnti áherslumál sín fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í Reykjavík í Tjarnarbíói í dag. Á sunnudaginn verður vöfflukaffi þar sem áherslur verða kynntar fyrir borgarbúum. Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti flokksins, segist stoltur af breiðum hópi frambjóðenda.
Meðal þess sem flokkurinn stefnir að eru heimgreiðslur til foreldra á meðan þeir bíða eftir leikskólaplássi fyrir börn sín og að innleiddur verði 100% systkinaafsláttur.
„Við höfum það markmið að tryggja öllum börnum leikskólapláss frá 12 mánaða aldri og tökum upp í millitíðinni heimgreiðslur til foreldra sem bíða eftir plássi.“
Vilja taka til í bílastæðaöppum
Guðmundur Ingi segist vilja tryggja öflugt velferðarkerfi og að markmið flokksins fyrir kosningar séu skýr: Fólkið fyrst og svo allt hitt.
„Þá erum við að tala um eldri borgara, börn og ungmenni með fjölþættan vanda. Finna réttu greiningarnar fyrir börnin sem þurfa á því að halda. Efnaminna fólk og öryrkja. Þetta er okkar hópur og við viljum halda utan um það.“
Þá hafi flokkurinn einnig miklar og sterkar skoðanir á hlutum eins og samgöngu- og bílastæðamálum. Ein af áherslum flokksins er að taka til í þeim bílastæða „apps“ frumskógi sem myndast hefur, öppin séu mörg og misflókin og henti því illa eldri notendum.
„Við viljum að kerfin virki fyrir fólkið.“
Óvenjuleg leið í oddvitasætið en lendingin ljúf
Leið Guðmundar í oddvitasæti Flokks fólksins í borginni var heldur óhefðbundin en hann kveðst sáttur við þá lendingu sem náðist, hann fái nú að vinna í þeim málum sem hann sé með mikla reynslu í.
„Málefni jaðarsettra og minnihlutahópa og fólksins sem virkilega þarf stuðning og kerfið er ekki að grípa.“
Guðmundur Ingi telur að sín reynsla muni koma sér vel í málaflokknum.