„Við erum við erum bara að einfalda málin,“ segir Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í borginni, um tillögu nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks um að fella niður reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús borgarinnar. Meirihlutinn vill að íslenski fáninn blakti við hún öllu jafna.
„Þetta hefur aldrei verið vesen í húsinu skilst mér fyrr en á þessu kjörtímabili þannig að það verður bara vinnureglan og svo eru auðvitað flottar hefðir í gangi bæði á þjóðhátíðardögum, þegar við fáum erlenda gesti í heimsókn, og í kringum Pride-hátíðina sérstaklega, þar sem við drögum viðeigandi fána að húni.“
Komin með heimsmálin í fangið
Hún segir fundartíma borgarstjórnar fyrst og fremst eiga að vera varið í þjónustu við Reykvíkinga.
„Á þessu kjörtímabili sem er núna að klárast hafa farið ófáar klukkustundir hjá borgarfulltrúum í að ræða hvaða erlendum þjóðfánum eigi að flagga fyrir utan ráðuneytið og önnur stjórnsýsluhús og hversu lengi og með því hefur borgarstjórn fengið heimsmálin í fangið og það hefur bara sýnt sig að það er mjög flókið og tímafrekt að draga línuna um það hvaða fánum eigi að flagga og hvenær og hversu lengi.“
Hún segir vel koma til greina að ræða hönnun sérstaks friðarfána, líkt og Sjálfstæðismenn hafi áður talað fyrir.
Hinsegin fánanum áfram flaggað
Aðspurð segir hún niðurfellingu reglnanna ekki tala inn í stefnu Miðflokksins, en Snorri Másson þingmaður flokksins hefur gagnrýnt sýnileika hinsegin fánans. Björg bendir á að þar hafi flöggun í kringum skóla verið til umræðu, sem sé þessu máli óskylt.
„Þarna er bara verið að taka af borðinu mál sem borgarstjórn hefur varið rosalega miklum tíma í og búa til einfaldar vinnureglur þannig að við getum farið að setja fókusinn á þjónustu við Reykvíkinga,“ segir Björg.
Hún segir misskilnings gæta í umræðu síðustu daga um flöggun hinsegin fána. Hinsegin fánanum verði flaggað við stjórnsýsluhús borgarinnar hér eftir sem hingað til þrátt fyrir niðurfellingu reglnanna.
„Þessi meirihluti stendur með mannréttindum alla leið þannig að þetta hefur ekkert með það að gera og við munum bara gefa í ef eitthvað er í tengslum við Pride-hátíðina sem er núna seinna í sumar“