Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins
Lögmaðurinn Guðrún Björg Birgisdóttir starfaði sem ráðsmaður fólks sem svipt hafði verið fjárræði og er sökuð um að hafa nýtt sér stöðu sína til að fremja auðgunarbrot. Ólafur Hauksson héraðssaksóknari segir meintan fjárdrátt hennar vera til meðferðar hjá embættinu og velferðarsviði Reykjavíkurborgar var gert viðvart þar sem hún sá um fjármál minnst tveggja einstaklinga.
Grunur leikur á um að Guðrún Björg Birgisdóttir lögmaður hafi ekki aðeins millifært fé úr dánarbúi konu á eigin reikning heldur einnig nýtt sér stöðu sína sem ráðsmaður einstaklinga sem sviptir höfðu verið fjárræði til að draga sér fé.
Guðrún fór með fjármál minnst tveggja skjólstæðinga Reykjavíkurborgar sem velferðarsvið segir hafa upplifað brot á trausti við fregnir um rannsókn málsins.
Eins og Heimildin greindi frá í gær hefur Guðrún, sem stofnaði og rak lögmannsstofuna Logia, verið kærð fyrir fjárdrátt upp á tæpar 13 milljónir króna úr dánarbúi konu sem hún var skiptastjóri í. Hún hefur einnig verið tilkynnt af skiptastjóra til héraðssaksóknara vegna rökstudds gruns um auðgunarbrot í tengslum við rekstur Logia sem nú er til gjaldþrotaskipta.
Ólafur Hauksson héraðssaksóknari staðfestir í samskiptum við Heimildina að kæra hafi borist vegna máls Guðrúnar. „Málið er hér til meðferðar,“ svaraði hann í tölvupósti. „Nánari …