Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) funduðu hjá ríkissáttasemjara í vikunni en viðræður þokast hægt og enn er ekkert samkomulag í sjónmáli. Flugmenn hafa verið samningslausir frá síðasta hausti en deilan snýst um vinnuframlag þeirra og kröfu flugfélagsins um aukinn sveigjanleika.
Icelandair heldur áfram að aflýsa flugum vegna áhafnarskorts. Í það minnsta fimm flugum var aflýst í vikunni og hefur flugi til Rómar klukkan 07:40 í fyrramálið nú einnig verið aflýst. Deilan virðist vera orðin stærri en hefðbundin vinnudeila en ákvörðun um næsta fund verður tekin yfir helgina samkvæmt upplýsingum frá ríkissáttasemjara.