Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku - Vísir
23.04.2026 07:33:56👁️ 0 lesið
Samkvæmt umfjöllun TV2 barst viðbragðsaðilum tilkynning um lestarslys klukkan hálf sjö í morgun að staðartíma. Tvær lestir á leið sinni hvor úr sinni áttinni til Hillerød á norðanverðu Sjálandi höfðu skollið saman við leiðamót.Fjöldi viðbragðsaðila er á vettvangi.Ritzau Scanprix Öllum farþegum hefur verið komið úr lestunum tveimur en ljóst er af myndum af vettvangi að höggið hefur verið þungt.Ekkert liggur fyrir mögulegar orsakir slyssins enn sem komið er.