Ísraelar héldu árásum sínum á Líbanon áfram í morgun.
Fjórir voru drepnir í árásum í suðurhluta landsins í morgun, að því er fram kemur á vef Al-Jazeera. Þar á meðal var bóndi á býli sínu og sextán ára piltur fyrir framan heimili sitt í Habboush.
Ísraelsher hvatti íbúa til að yfirgefa Tyre í morgun. Fréttamaður AFP-fréttaveitunnar sagði að íbúar streymdu út úr borginni til að forðast árásir. Fimm voru drepnir í árásum Ísraela á borgina í gær og átta særðust.