Lögregla í Hollandi hefur handtekið fjóra menn og rannsakar nú þá meintu háttsemi þeirra að byrla fjölda kvenna eitur og brjóta gegn þeim kynferðislega.
Nýttu grunuðu lokaða hópa á samfélagsmiðlum þar sem þeir deildu ráðum um hvernig best væri að fremja ódæði sín auk þess sem þar deildu þeir myndum og myndskeiðum af nauðgunum.
Að sögn lögreglu er fjöldi brotaþola óþekktur og útilokar hún ekki fleiri handtökur er rannsókninni vindur fram en þeir sem þegar eru í haldi voru handteknir við húsleitir á heimilum átta manns sem liggja undir grun í málinu.
Brotin hafi gríðarlegar afleiðingar
Fundust lyf og vopn við sumar húsleitanna og segir Milou van der Kolk, rannsóknarlögreglumaður við kynferðisbrotadeild lögreglunnar í Rotterdam, að brot grunuðu hefðu gríðarlegar afleiðingar.
„Sem fórnarlamb veistu ef til vill ekki í hverju þú lentir þar sem þér var byrluð ólyfjan og þú varst meðvitundarlaus,“ segir hann en í sumum málanna leikur grunur á að um brot í nánum samböndum hafi verið að ræða eða brotamenn hafi verið tengdir brotaþolum vina- eða kunningjaböndum.