Norðurþing er síðasta sveitarfélagið af 20 fjölmennustu sveitarfélögum landsins til þess að mynda og tilkynna um meirihluta. Nú er orðið ljóst, það sem hafði verið í burðarliðnum frá því fljótlega eftir kosningar, að fjórir flokkar mynda aukinn meirihluta í Norðurþingi næsta kjörtímabil. Samtals eru flokkarnir fjórir með 70,9% fylgi.
Sjálfstæðisflokkurinn leiddi viðræður fjögurra flokka og kynntu þeir í dag nýjan málefnasamning. Hinir flokkarnir í meirihlutanum eru: Framsókn, Óskalistinn og Samfylkingin. Saman fá flokkarnir sjö fulltrúa af níu í sveitarstjórn. Í minnihlutanum verða Miðflokkur og VG, sem fengu hvor sinn fulltrúann.
Ekki er búið að taka ákvörðun varðandi sveitarstjóra og segir í tilkynningu frá nýjum meirihluta að ákvörðun verði kynnt síðar en hann verði faglega ráðinn. Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks, verður forseti sveitarstjórnar og Kjartan Páll Þórarinsson, oddviti Samfylkingarinnar, verður formaður byggðarráðs.
Það sem vekur athygli er að samkvæmt meirihlutasáttmálanum fer Óskalistinn ekki með formennsku í neinni nefnd.
Í tilkynningu frá meirihlutanum segir: „Það er meginmarkmið framboðanna að hafa að leiðarljósi breiða sátt og samvinnu þvert á alla flokka í allri vinnu fyrir íbúa í Norðurþingi á vettvangi sveitarstjórnar, íbúum og atvinnulífi í samfélaginu til heilla. Lögð verður sérstök áhersla á aðhald í rekstri, atvinnuuppbyggingu, farsæld og aðstæður barna og ungmenna í störfum meirihlutans.“
Óskalistinn kom nýr inn og náði inn manni
Óskalistinn náði nokkuð óvænt inn manni í Norðurþingi en listinn lagði sérstaka áherslu á betra samtal milli byggðarlaga í sveitarfélaginu og horfði sérstaklega til Raufarhafnar, Kelduhverfis, Reykjahverfis og Kópaskers. Helena Eydís, verðandi forseti sveitarstjórnar, hafði þetta að segja um meirihlutann:
„Samstarf okkar við Framsóknarflokkinn í meirihluta á nýafstöðnu kjörtímabili var farsælt og mikill samhljómur var með málefnaskrám Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í aðdraganda kosninga. Við höfum átt gott samstarf við fulltrúa Samfylkingarinnar í meiri- og minnihluta á undanförnum kjörtímabilum ásamt því að áherslur þeirra á aðstæður barna og ungmenna samræmast okkar áherslum. Óskalistinn kom nýr inn í sveitarstjórn í kosningunum í maí. Þau háðu heiðarlega og fallega kosningabaráttu, með ákalli um betra samtal á milli byggðalaga sveitarfélagsins, sem okkur þykir mikilvægt að bregðast við. Við leituðumst því við að mynda sem bestan meirihluta m.t.t. málefna og væntinga um árangur í samstarfi, til að mæta óskum kjósenda, en á bak við framboðin eru 70,9% gildra atkvæða í kosningum í Norðurþingi. “