Fjármálaráðherra hafnar ásökunum um að hafa rangtúlkað niðurstöður skýrslu erlendra sérfræðinga um gjaldeyrismál. Ný skýrsla um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum var rædd á Alþingi í dag.
Fjármálaráðuneytið hefur verið harðlega gagnrýnt, einkum fyrir fullyrðingu um að kostnaður við íslensku krónuna sé að jafnaði meiri en ábatinn.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er ósammála þeirri gagnrýni enda hafi fimm meginniðurstöður skýrslunnar verið dregnar fram.
„Þar eru í heildina nefnd fimm atriði; þrjú sem renna stoðum undir upptöku evru og tvö sem styðja frekar við sjálfstæða peningastefnu og sjálfstæðan gjaldmiðil. Ég á því erfitt með að fallast á að gagnrýnin sé réttmæt og sanngjörn,“ sagði Daði Már á Alþingi í dag.
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, fór fram á umræðuna. Hann hrósaði ráðherra fyrir heiðarlegri framsetningu en í umræddri fréttatilkynningu. Hann og fleiri stjórnarandstæðingar sem tóku til máls héldu þó áfram að gagnrýna framsetninguna.
„Ríkisstjórnin gerir mikið úr því að draga þurfi úr upplýsingaóreiðu en er síðan einhvern veginn í fararbroddi hvað upplýsingaóreiðu varðar í mörgu tilliti.“