Fjárlagafrumvarpið: Skatta- og gjaldhækkanir gagnrýndar

Fjárlagafrumvarpið: Skatta- og gjaldhækkanir gagnrýndar

Fjárlagafrumvarpið: Skatta- og gjaldhækkanir gagnrýndar

Athygli vakti við kynningu fjárlagafrumvarps næsta árs að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifaði stórt núll með tússi á spjald sem Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hélt á. Það var til marks um að enginn halli yrði á ríkisrekstrinum á næsta ári.

Kristrún og Daði Már eru ekki þau fyrstu til að fagna hallalausu fjárlagafrumvarpi með þessum hætti.

Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna frá 1993 til 2001, var vígreifur þegar hann kynnti fjárlög ársins 1999. Þegar hann lauk ræðu sinni um ágæti fjárlaganna gekk hann að töflu sem hafði verið komið fyrir, fékk afhentan túss og ritaði stórt núll til marks um að fjárlögin yrðu hallalaus. Sá sem afhenti honum tússinn var Al Gore, varaforseti Bandaríkjanna.

„Mín fyrstu viðbrögð eru þau að mér finnst þetta mjög bjartsýnt. Þau eru að tala hér um afgang upp á tæpa fimm milljarða sem eru 0,1%, sem er auðvitað mjög lítið og þarf mjög lítið útaf að bregða til þess að það verði halli en ekki hallalaus fjárlög,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, um fjárlögin.

„Svo verð ég að segja það að þetta er ríkisstjórn sem var kosin til þess að ná hér niður vöxtum og verðbólgu, og talaði um það i lok árs 2024 að þau myndu einbeita sér að því. Það var það loforð sem þau gáfu þjóðinni. Það hefur ekkert gengið né rekið í að ná hér niður vöxtum og verðbólgu nema síður sé.“

Guðrún segist vitaskuld hrósa ríkisstjórninni fyrir þann metnað sem hún sýni til að vera með hallalaus fjárlög.

„En það verður þá að vera eitthvað raunverulegt hald í þeim tillögum sem liggja þar að baki, og ég sé það því miður ekki.“

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, lýsir áhyggjum af því að í fjárlagafrumvarpi næsta árs sé ekki að sjá neinar aðgerðir sem liðki fyrir því að kjarasamningar geti valdið.

„Að því leytinu til er það slæmt fyrir allan almenning á Íslandi ef við finnum ekki leiðir til að þeir haldi,“ segir Halla í viðtali við Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur fréttamann.

Forysta vonaðist eftir frystingum á gjaldskrám til að liðka fyrir því að samningar haldi. Svo virðist ekki vera, segir Halla. Að sama skapi séu húsnæðis- og barnabætur að rýrna.

„Auðvitað hefur maður líka áhyggjur af aukinni gjaldheimtu á fólk og mögulega skerðingu á þjónustu. Við eigum eftir að sjá almennilega hvernig á að útfæra þann part af fjárlögunum, sem er þetta svokallaða aðhald, það er niðurskurður.“

„Það sem við höfum haft áhyggjur af er þetta harða markmið um hallalaus fjárlög,“ segir Halla. Hún segir að fara verði vel með opinbert fé en óttast áhrifin ef það eigi að ná því með niðurskurði og gjöldum. Halla segir að ríki og sveitarfélög hafi étið upp hluta af launahækkunum almennings með því að standa ekki við fyrirheit um að halda aftur af gjaldahækkunum.

„Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir heimili og fyrirtæki í landinu. Hér er verið að hækka skatta og álögur, það er verið að hækka kílómetragjaldið. Og það sem verra er er verið að hækka krónutöluhækkanir upp á 5,2% sem er ekki gott upp á verðbólguvæntingar og að ná niður verðbólgu,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, um fjárlagafrumvarpið.

Hún segir fjárlögin vonbrigði og hefur ekki trú á að þau séu til þess fallin að lækka verðbólgu og vexti.

„Við eigum að vaxa úr vandanum. Við eigum að vera með þannig hagstjórn að við séum með þokkalegan hagvöxt. Eins og staðan er núna, nýjasta hagspáin bendir til þess að hagvöxtur sé að lækka. Við höfum trú á því að þetta sé vinna, vöxtur velferð, en það er ekki það sem þessi ríkisstjórnin er að gera. Hún hækkar álögur á fólk og fyrirtæki í landinu og það er neikvætt,“ segir Lilja.

„Seðlabankinn sagði það síðast þegar þeir voru að hækka vexti, þá töluðu þeir um að það væri verið að hækka stýrivexti fyrst og fremst vegna hækkana á opinberum gjöldum. Þetta gengur ekki lengur og ég er mjög hissa á að ríkisstjórnin átti sieg ekki á því.“

Ríkið ætlar að verja tæpum 12,8 milljörðum króna í öryggis- og varnarmál á næsta ári.

Þetta er raunhækkun upp á 2,4 milljarða króna frá fyrra ári. Hækkunin skýrist að stærstum hluta af nýrri 2,3 milljarða króna viðbót ríkisstjórnarinnar.

Þessum aukapeningi á samkvæmt frumvarpinu að verja í þrennt:

  • Að styrkja varnir landsins.
  • Að taka meiri þátt í alþjóðlegu samstarfi.
  • Að laga og byggja upp mannvirki á varnarsvæðum ríkisins.

Hluti af fénu mun renna til þess að styðja áfram við Úkraínu. Ísland mun meðal annars taka þátt í að kaupa hergögn og aðrar nauðsynlegar birgðir fyrir landið.

Einnig á að fylgjast betur með loftrýminu yfir Íslandi. Loks á að fjölga þjónustubyggingum og gistirýmum á öryggissvæðinu í Keflavík.

Magnús Geir Eyjólfsson fréttamaður sat kynningarfund vegna fjárlagafrumvarps næsta árs og ræddi við ráðherra að kynningu lokinni. Nokkur atriði í frumvarpinu vöktu athygli Magnúsar Geirs.

Kynning fjármálaráðherra var óhefðbundin að því leyti að forystukonur ríkisstjórnarinnar sátu á fremsta bekk. Alla jafna sitja ráðherrar ekki kynningar á fjárlagafrumvarpi. Tíðindin eru eflaust þau að það er stefnt á að reka ríkissjóð með 5 milljarða afgangi. Það yrði þá í fyrsta skipti í nærri áratug sem ríkið yrði rekið með afgangi. En það er eitt að leggja fram hallalaus fjárlög, það er annað að sjá til þess að það gangi eftir. Nær undantekningalaust aukast útgjöldin þegar frumvarpið kemur til kasta þingsins og þróunin í heimshagkerfinu er óhagfelld.

Stóru tíðindin birtust á glæru sem Daði varpaði upp undir lok kynningarinnar. Á útgjaldahliðinni á að spara 43 milljarða. Fjórir milljarðar fara í flatan niðurskurð þvert á málaflokka, þrír milljarðar eiga að sparast með fækkun stöðugilda og svo á að spara 36 milljarða í óskilgreindum „sértækum útgjaldaaðgerðum“. Aðspurður segir Daði það felast í sameiningu stofnana og aukinni skilvirkni.

Á tekjuhliðinni á að sækja rúmlega 22 milljarða. Þar af koma 9 milljarðar úr ferðaþjónustu, annars vegar fjórir milljarðar í hækkun virðisaukaskatts á baðlón og hins vegar fimm milljarðar í innviðagjöld. Hærri bankaskattur á að skila sex milljörðum, kílómetragjöld verða hækkuð og skila fjórum milljörðum aukalega og svo verða endurgreiðslur virðisaukaskatts vegna íbúðarhúsnæðis lækkaðar.

Daði gerir einnig ráð fyrir 6 milljarða króna tekjuaukningu vegna bankaskatts. Spurður hvort hann óttist að aukin skattheimta á bankana skili sér í verri kjörum til almennings segir Daði:

„Það er alltaf þannig að þegar álögur eru hækkaðar þá dreifist kostnaðurinn að einhverju leyti á þann sem er skattlagður og viðskiptavini hans. Það er hins vegar þannig að þessar ófyrirséðu viðbótartekjur sem bankakerfið hefur fengið vegna verðbólgu, það er borð fyrir báru getum við sagt.“

Hægt er að horfa á viðtal Magnúsar Geirs Eyjólfssonar fréttamanns við Daða í heild hér í spilaranum.

Fjármálaráðherra boðar einng 4 milljarða króna tekjuaukningu vegna kílómetragjalds.

„Þau eru eitthvað að hækka. Þetta er í samræmi við langtímastefnu sem þessi ríkisstjórn tók yfir og hefur haldið sig við um að styrkja fjárhagslegar stoðir undir fjárfestingar í samgöngum. Við höfum stigið mjög stórt skref í að auka þær fjárfestingar en þær þarf auðvitað að fjármagna,“ segir Daði.

Meðal tekjuaðgerða sem Daði boðar eru 5 milljarða króna tekjur vegna gjaldtöku í ferðaþjónustu.

„Þetta er svokallað innviðagjald,“ segir Daði.

„Þetta var boðað í ríkisstjórnarsáttmálanum. Þetta hefur lengi verið í umræðunni og er einhvers konar afgjald fyrir þá þær náttúruauðlindir eða náttúruperlur sem ríkið á og eru eru heimsóttar af ferðamönnum.“

Þannig það á að taka upp gjaldtöku á ferðamannastöðum?

„Það á að taka upp gjaldtöku á ferðamannastöðum,“ segir Daði.

Á það jafnt við um Íslendinga og erlenda ferðamenn?

„Nei, hugmyndin er sú að þetta nái einungis til erlendra gesta. Íslendingar eiga jú þessar auðlindir þó ríkið fari með forsvarið, og hafa þegar greitt sitt gjald fyrir reksturinn á þeim.“

„Við hljótum að vera sammála um að við munum aldrei ná sjálfbærum rekstri ríkisins ef við förum ekki yfir núllið einhvern tímann. Það erum við að gera núna og það er mjög mikilvægt,“ sagði Daði Már í viðtali við fréttastofu eftir kynninguna, spurður hvort hann væri bjartsýnn á að markmiðið um hallalausan rekstur ríkisns tækist.

Daði boðaði fimm milljarða króna afgang af fjárlögum næsta árs.

Í meðferðum þingsins á fjárlagafrumvarpi er algengt að útgjaldaliður ríkisins hækki. Daði segist vonast til þess að þingið skilji mikilvægi þess að skila hallalausum fjárlögum.

„Þetta er það tæki sem ríkið hefur yfir að ráða til að draga úr verðbólgu. Ríkið getur minnkað eigin umsvif og það er besta leiðin. Þó það sé freistandi að setja meiri peninga út, sem það er alltaf, og ef við skoðum Íslandssöguna hefur verið gert ítrekað oft, er núna ákallið um að við stöndum saman um að ná niður verðbólgunni. Þetta verður að klárast.“

Alla jafna er fjármálaráðherra eini ráðherrann á staðnum þegar fjárlagafrumvarp er kynnt. Því var ólíkt farið í ár því formenn allra stjórnarflokkanna voru á staðnum.

Þegar Daði Már Kristófersson hafði lokið kynningu sinni bauð hann formönnunum upp á svið. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ritaði stórt 0 á spjald sem Daði hélt á undir orðunum: Halli ríkissjóðs árið 2027.

Að því loknu föðmuðu formenn stjórnarflokkanna hann og stilltu sér upp við hlið hans fyrir myndatöku.

Kynningu fjármálaráðherra er lokið og búið að birta fjárlagafrumvarp næsta árs.

Hér geturðu farið inn á fjárlagavef næsta árs og skoðað í hvað peningarnir fara á næsta ári og hvaða breytingar verða á ríkisrekstri.

Þar kemur meðal annars fram að fimm milljarða afgangur er áætlaður á fjárlagafrumvarpi næsta árs eftir 37 til 237 milljarða halla á hverju ári frá 2019 til 2026.

Fjármálaráðherra er ekki eini ráðherrann á kynningarfundinum. Þar sitja Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, mætti þegar Daði Már var byrjaður á kynningu sína og farinn að ræða um hvað þyrfti að leggja áherslu á. Daði heilsaði Ingu sem tók undir kveðjuna og sagði að það þyrfti að laga umferðina.

Daði Már þakkaði þeim fyrir samstarfið og kvaðst kunna að meta hvernig flokkarnir hefðu unnið saman að því erfiða verkefni að ganga frá hallalausum fjárlögum.

Fjármálaráðherra segir að mestu kjarabætur sem hægt sé að færa íslenskum heimilum sé að ná vöxtum og verðbólgu niður. Hann segir mikilvægasta verkefnið vera að sýna aga.

Halli er miklu algengari en afgangur þegar fjárlög eru skoðuð aftur í tímann, segir Daði Már Kristófersson. Hann segir bankahrunið og covid hafa sýnt að hófleg skuldastaða ríkisins sé aðalatriðið í svigrúmi ríkisins til að bregðast við áföllum.

Reka á ríkissjóð með fimm milljarða króna afgangi á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, er að kynna.

Þetta verður í fyrsta skipti síðan 2018 sem ríkið er rekið hallalaust, ef fjárlögin ganga eftir. Síðan þá hefur ríkið verið rekið með allt að 237 milljarða króna halla á ári. Það gerðist í covid.

Samantekt ráðuneytisins á fjármálaráðuneytinu má nálgast hér.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hóf kynningu sína á fjárlögum næsta árs með því að rifja upp þegar hringt var í hann tvítugan og spurt út í helstu skoðanir hans á stjórnmálum. Svarið þá var: „Ég hef mestar áhyggjur af hallarekstri ríkisins.“

Hann sagði það sérstaklega ánægjulegt að vera í því hlutverki nú að kynna hallalaus fjárlög í fyrsta skipti síðan 2018.

„Við erum loksins að fara úr mínus í plús“

Hann sagði að á þessum tíma hefði samanlagður hallinn verið 866 milljarðar og lýsti hann því sem „velferð sem við höfum tekið að láni“.

Hægt er að fylgjast með kynningu fjármálaráðherra í beinni útsendingu efst í fréttinni. Við segjum svo helstu tíðindi hér í fréttavaktinni.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá því í Vikulokunum á laugardag að nokkurra milljarða króna afgangur yrði á fjárlagafrumvarpi næsta árs.

„Ég mun auðvitað kynna þetta á mánudaginn og þá verða allar þessar tölur ljósar en þetta hleypur á einhverjum milljörðum,“ segir Daði.

Langt er liðið síðan Alþingi afgreiddi síðast hallalaus fjárlög. Það var undir lok árs 2018 þegar þingið samþykkti fjárlög fyrir 2019.

Góðan dag og velkomin á fréttavakt um fjárlagafrumvarp næsta árs. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnir frumvarpið. Við fylgjumst með því og flytjum ykkur svo fréttir af frumvarpinu og viðbrögð við því.

Ég heiti Brynjólfur Þór Guðmundsson og legg af stað með ykkur inn í daginn.

#fjárlagafrumvarpið #gagnrýndar #gjaldhækkanir #skatta


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-07-fjarlagafrumvarpid-skatta-og-gjaldhaekkanir-gagnryndar-486236

📰 Aðrar fréttir

Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
📅 22.10.2026 👁️ 0
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
Félag atvinnurekenda (FA) gerir alvarlegar athugasemdir við að fyrirhuguð leigubremsa muni einnig ná til atvinnuhúsnæðis. Engin fullnægjandi rök hafi ...
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Samkvæmt útreikningi fréttastofu nemur meðaltal fjarveru utanrík...
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
Skólaár byrjar og endar. Næsta skólaár tekur við. Fyrir þann sem bíður eftir nauðsynlegri aðstoð getur þetta þýtt að enn eitt tækifærið líður hjá. Þeg...
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
📅 22.10.2026 👁️ 2
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
Meintur nauðgari hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. október, en hann hafði verið í felum til að sleppa annars vegar undan ákæru fyrir kyn...
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
Yfirvöld í Suður-Kóreu ætla að senda bréf til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem kallað verður eftir því að ráðamenn í Norður-Kóreu biðjist afsöku...
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
Bransamiðillinn Hollywood Reporter greinir frá ráðningunni. Spennumyndin Hafið er svart (Dark Ocean á ensku) er framleidd af Glassriver en Baldvin Zop...
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
📅 22.10.2026 👁️ 3
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki ætla að styðja þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna um að draga formlega til ba...
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
Myndin er úr smiðju bandaríska sjónvarpsmannsins Nathan Fielder sem gert hefur garðinn frægan með sjónvarpsþáttunum Nathan For You og síðast The Rehea...
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
📅 22.10.2026 👁️ 2
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
Night-time traffic restrictions are due to begin on the TF-1 this Sunday, 25th October, as the Tenerife Cabildo starts a six-month programme to resurf...
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
Skýrsla vinnuhóps sem Alma Möller heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2025 var birt í dag. Markmið hópsins var að fjalla um fyrirkomulag heilbrigðisþj...
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, segir stofnunina hafa viljað halda Eggerti áfram. Vísir greindi frá ráðningu h...
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum. Stóri bróðir/Vigilant er samevrópskt samstarfsverkefni íslenska framleiðslufyrirtækisins ACT4, streym...
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
Þetta segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 19. október og staðfestur af Landsrétti í gær. Í honum segir að í greinargerð ...
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
📅 22.10.2026 👁️ 3
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA 2027. Atvinnulífið og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, ...
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
📅 22.10.2026 👁️ 3
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
Systir Matthew Perry sagði að hinn frægi þáttur Friends, þar sem persóna hans, Chandler, gengur að eiga Monicu, hafi verið fjölskyldu Perry bæði gleði...
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
📅 22.10.2026 👁️ 3
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
Ekki er laust við að margir hafi hreinlega verið búnir að gleyma Sigurði Inga Jóhannssyni, fyrrverandi formanni Framsóknar. Ugglaust héldu margir að h...
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 3
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 2
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabankanum, undirritar umsögn bankans ásamt Flóka Halldórssyni, framkvæmd...
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir Alrík­is­sak­sókn­ari segir mann­inn hafa aflað upp­lýs­inga um fram­leiðslu bryn­var­inn...
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
The congresswoman said federal agents seized over a dozen items, including cell phones and notebooks, as part of a federal investigation.
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
📅 22.10.2026 👁️ 2
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
Landsréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald til 16. nóvember yfir karlmanni sem er grunaður um nauðgun. Hann hefur játað sök að hluta. Illa hefur gengið...
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
Alvarlegir veikleikar fundust í PHP-forritunarmálinu sem er notað fyrir um sjötíu prósent vefsíðna heimsins. Vegna gallanna var fjölmörgum vefsíðum lo...
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
Sænsk yfirvöld rannsaka enn tilraunir hóps manns til þess að kaupa atkvæði í Dölunum í Norður-Svíþjóð í þingkosningunum sem fóru fram í síðasta mánuði...
Margrét Löf vill komast í opið fangelsi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Margrét Löf vill komast í opið fangelsi - Vísir
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Margrétar gerir málinu skil í Facebook færslu. Þar gerir hann skóflustungu að nýju fangelsi Stóra-Hrauni að umfjölluna...
Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum
Um níu milljón einnota frauðplastkassar, fullir af ferskum fiski og ís, eru á hverju ári fluttir út frá Íslandi, aðallega með flugi, til viðskiptavina...
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
Það sem Harry Bretaprins sér hvað mest eftir í lífinu er seinasta símtalið sem hann átti við móður sína, Díönu prinsessu, áður en hún lést í bílslysi ...
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
📅 22.10.2026 👁️ 4
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
Engin staðfest innbrot hafa orðið vegna öryggisgallans í PHP-forritunarmálinu að sögn Antons Más Egilssonar, forstjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis....
French weekend protests to be limited to union demos only, says Macron
📅 22.10.2026 👁️ 3
French weekend protests to be limited to union demos only, says Macron
Some cities including Lyon and Nice have banned all protests, and the French president said only authorised demos would be allowed.
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
📅 22.10.2026 👁️ 4
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
Every winter, the Canary Islands draw visitors from much further away than Manchester or Madrid. Canadians escaping frozen mornings and Americans chas...
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
📅 22.10.2026 👁️ 4
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
Leigusali í Lundúnum segir að fyrirtæki sem útvegar breskum stjórnvöldum húsnæði fyrir hælisleitendur hafi boðið honum 4.500 pund í mánaðarleigu fyrir...
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot, er að sögn lögmanns hans fárveikur í fangelsi. Biður hann fólk um að biðja fyrir Tate.B...
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
Elva Hrönn Hjartardóttir, fjáröflunarstýra hjá Amnesty International, er nýkomin frá París. Hún segir fréttir af borginni í ljósum logum gefa ranga my...
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í þremur nýjum skýrslum Ríkisendurskoðunar um stofnanakerfi ríkisins sem kynntar voru fyrir stjórnskipunar- og efti...
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
📅 22.10.2026 👁️ 4
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
A man was rescued from an overturned car in Lanzarote yesterday afternoon (Wednesday) after firefighters used hydraulic tools to open the driver’s doo...
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
Ríkisstofnunum hefur fækkað um 18,7% frá því árið 2020 og telur Ríkisendurskoðun stjórnvöld hafa brugðist við að fullu við tveimur af fjórum tillögum ...
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
Þorsteini Má Baldvinssyni, fyrrverandi forstjóra Samherja, og lögmanni hans tókst ekki að sýna fram á að hann hefði orðið fyrir miska þó að persónuupp...
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
📅 22.10.2026 👁️ 4
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
The BBC's technology correspondent Joe Tidy explains how it happened, and what it means for you.
Færsluóður mið­aldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Færsluóður mið­aldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ - Vísir
Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal veltu því sennilega margir fyrir sér í gærkvöldi hvers vegna Gunnar Helgason, barnabókahöfundur og leikari, deildi ...
Harry Brook hits 202 for England against Sri Lanka in ODI tri-series
📅 22.10.2026 👁️ 4
Harry Brook hits 202 for England against Sri Lanka in ODI tri-series
Captain Harry Brook becomes the first England batter to make a double century in a one-day international with a sensational 202 against Sri Lanka in R...
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
📅 22.10.2026 👁️ 5
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík Fréttin22. október 2026InnlentLeave a Comment Hákon Jóh...
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
📅 22.10.2026 👁️ 5
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri þáttaröð hinna vinsælu sjónvarpsþátta The White Lotus, hefur verið ráðinn í aðalhlutverk ný...
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
📅 22.10.2026 👁️ 5
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
A five-year-old girl and two adults were taken to hospital after two cars collided on the TF-1 near Las Chafiras in southern Tenerife this morning (Th...
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
📅 22.10.2026 👁️ 5
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
Lögmaðurinn og samfélagsrýnirinn Arnar Þór Jónsson fékk martröð í nótt sem hann óttast að verði að veruleika. Í færslu í hópnum Ísland – Þvert á flokk...
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
📅 22.10.2026 👁️ 5
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segir fangelsið á Hólmsheiði vera mannfjandsamlega byggingu og er hann ekki bjartsýnn á að nýtt öryggisfangelsi sem...
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 5
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
Vinna við farþegasalinn við Þönglabakka er þegar hafin og á að ljúka 5. desember. Framkvæmdir við stöðina utandyra gætu hafist vorið 2027, en sú tímas...
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
📅 22.10.2026 👁️ 5
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Commen...
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
📅 22.10.2026 👁️ 5
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu Fréttin22. október 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar:...
Trial hears Tommy Robinson hired private detectives to find Daily Mail reporters
📅 22.10.2026 👁️ 4
Trial hears Tommy Robinson hired private detectives to find Daily Mail reporters
The political activist denies wanting to expose two Daily Mail journalists to threats of violence.
Tommy Robinson hired detectives to find Daily Mail journalists, court told
📅 22.10.2026 👁️ 3
Tommy Robinson hired detectives to find Daily Mail journalists, court told
The political activist denies wanting to expose two Daily Mail journalists to threats of violence.