Rútufyrirtækið Guðmundur Tyrfingsson á Selfossi hefur fest kaup á 15 rafmagnsrútum. Nýju rúturnar voru hafðar til sýnis fyrir gesti og gangandi til að fagna þessum áfanga í sögu fyrirtækisins, 15 nýjum rafmagnsrútum í öllum stærðum.
Fyrirtækið er rótgróið fjölskyldufyrirtæki, stofnað 1969, og Guðmundur Tyrfingsson er sjálfur enn við störf hjá fyrirtækinu rúmlega níræður.
„Þetta eru rútur sem fara í alls konar verkefni hjá okkur. Sumar fara í Reykjanesbæ, einhverjar fyrir Vegagerðina og einhverjar í hópferðir. Þannig að þetta er bara svona sambland af alls konar stærðum og gerðum, sem fara í ýmis verkefni,” segir Tyrfingur Guðmundsson framkvæmdastjóri GTS.
Hvað draga þær langt, hvað er hægt að keyra þær lengi?
„Það er svolítið misjafnt eftir stærð á bílum. Minni bílarnir fara 300 kílómetra og stærsti 15 metra bíllinn 600 kílómetra,” segir Tyrfingur.
Fyrirtækið hefur komið upp stóru hleðsluplani fyrir rúturnar. Tyrfingur segir allt annað að keyra rafmagnsrútu en hefðbundna dísil- eða bensínrútu.
„Þetta er gjörólíkt, líður áfram og það heyrist ekki í þessu. Þetta er bara yndislegt. Upplifun farþega er líka mjög góð, fólki finnst þetta bara frábært.”
Fylgir kaupunum á rafmagnsrútunum einhver sparnaður?
„Til lengri tíma séð spörum við fullt af peningum á þessu, já. Þetta er dýrt í innkaupum, dýr fjárfesting en hún á eftir að skila sér á næstu árum,” segir Tyrfingur alsæll með kaupin á nýju rútunum.