Tvær lestir skullu saman við framanákeyrslu á milli bæjanna Hilleröd og Kagerup á norðanverðu Sjálandi í morgun. Morten Pedersen er lögreglustjóri í Norður-Sjálandsumdæmi.„Umfangsmikil rannsókn er hafinn og verið er að safna nauðsynlegum upplýsingum um atburðarásina,“ sagði hann á blaðamannafundi í Helsingjaeyri.„Við getum á þessari stundu ekkert sagt um tildrög slyssins eða orsakir þess. Rannsóknir verða að leiða það í ljós síðar,“ sagði hann.Á fundinum tók einnig til máls Anders Damm-Hejmdal yfirlæknir á bráðadeild. Hann sagði fimm í lífshættu en ekki fjórir eins og fram hafði komið. Allt í allt hafi 17 verið fluttir til aðhlynningar á sjúkrahús.Alls voru 38 manns um borð í lestunum tveimur þegar þær skullu saman. Maður sem var um borð í annarri lestinni en er óslasaður sagði í samtali við danska ríkisútvarpið að lestin hafi verið á mikilli ferð þegar slysið varð.
Fimm í lífshættu eftir lestarslysið - Vísir