Fimm flugferðum aflýst: Flugvéla- - MBL.IS
Annarri ferð Icelandair hefur verið aflýst en samkvæmt vef Isavia hefur flugi félagsins til Stokkhólms verið aflýst en vélin átti að fara í loftið klukkan 11 í dag.
Sjö ferðum var aflýst í gær, þar af fjórum vegna þess að ekki tókst að manna áhafnir. Þá sagði Bogi Nils Bogason forstjóri að staða sem þessi hafi ekki komið upp áður og stjórnendur félagsins séu mjög hugsi yfir henni. Bað Bogi farþega Icelandair afsökunar á óþægindunum.
Ástæðan vélaskortur
Þremur ferðum var þá aflýst vegna vélaskorts bæði sökum véla í viðhaldi og tafar á afhendingu á Airbus-vél til félagsins.
Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, staðfestir í samtali við mbl.is að ástæða aflýsingar ferðarinnar til Stokkhólms vera vélaskort.
Fréttin hefur verið uppfærð.