Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Framsóknarmönnum á Akureyri finnst ekkert athugavert að „fermingarbróðir“ sé meðal stúlkna í baðklefa sé eitthvað að marka svar frá einum bæjarfulltrúanum.
Drenglyndi óskaði eftir svörum frá framboðunum á Akureyri við ýmsum spurningum, sem er vel. Einn frambjóðandi og bæjarfulltrúi, í Framsókn, Gunnar Már Gunnarsson sendi hópnum opið bréf á norðlenskum miðli. Hann kaus að vera trúðurinn í sirkussýningunni.
Gunnar Már er svo skilningsvana þegar spurt er um réttindamissi stúlkna vegna laga um kynrænt sjálfræði að hann kemur af fjöllum. Maðurinn skilur ekki spurninguna og er bæjarfulltrúi.
Ætli Gunnar Már skilji spurninguna, sættir þú þig við Gunnar, að karlmaður sem segist kona og er með „fermingardrenginn“ á sínum stað megi baða sig, og strjúka „fermingardrengnum“ (þarf víst að þvo hann líka) við hlið stúlkna í baðklefa?
Gunnar Már virðist tala fyrir Framsókn því Sverre Jakobssen hinn góði handboltamaður segir á einum stað að Gunnar hafi svarað spurningum vel.
Þá má því spyrja fyrrverandi landsliðsmanninn í handbolta, sem býður sig fram á Akureyri fyrir Framsókn, ert þú sáttur við Sverre að karlmaður sem segist kona geti tekið þátt í kvennaflokkum í íþróttum, s.s. frisbígolfi, fótbolta, handbolta?
Sem íþróttamaður þekkir Sverre mun á karl- og kvenlíkama, styrk hans, þoli og getu. Svo Framsóknarmenn hvað segið þið á Akureyri? „Fermingardreng“ í baðklefa, og karla í kvennaíþróttir?
Eitt framboð, Okkar borg í Reykjavík, hefur talað afdráttarlaust gegn slíku ofbeldi gagnvart stúlkum.
Maður spyr, hafa frambjóðendur virkilega ekki hreðjar í að vernda réttindi stúlkna í hinum ýmsu bæjarfélögum og segja hlutina eins og þeir eru?
Vandið valið við komandi kosningar. Það skiptir máli upp á réttindi og forréttindi bæjarbúa hver situr við kjötkatlana.