Mikil umræða hefur skapast í Facebook hópnum Baklandi Ferðaþjónustunnar eftir að ferðaþjónustuaðili á Suðurlandi birti viðvörun vegna pars sem gisti í húsi við Hvolsvöll. Í færslunni er sérstaklega varað við einstaklingi að nafni Taeeun Kim frá Suður Kóreu og segir eigandinn að parið hafi skilið húsið eftir í skelfilegu ástandi.
Sagðist hafa fundið hár um allt húsið
Að sögn eigandans hafði parið bókað eina nótt í gistingu en óskaði síðar eftir að fá bókuninni aflýst. Ferðamaðurinn hafi hringt og sagt að allt væri í hárum og því ómögulegt að gista í húsinu.
Eigandinn segir að hún hafi sjálf þrifið húsið fyrr um daginn og talið fullyrðingarnar ekki standast. Þar sem hún komst ekki strax á vettvang hafi hún þó neyðst til að treysta því sem henni var sagt.
Enn í húsinu klukkan níu
Síðar fékk eigandinn upplýsingar um að parið væri enn í húsinu klukkan 21 þrátt fyrir að hafa óskað eftir afbókun. Þegar hún kom á staðinn rétt fyrir klukkan 22 voru þau farin.
Það sem blasti við henni vakti hins vegar mikla furðu.
Vatni sprautað inn í skápa og gluggar huldir
Samkvæmt lýsingu eigandans hafði vatni verið sprautað um allt húsnæðið með sturtuhaus, meðal annars inn í skápa. Gluggar höfðu verið huldir með klósettpappír og blóðblettir voru í rúminu og að sögn eigandans var „allt í skít“. Þá segir hún að húsið hafi verið skilið eftir í mikilli óreiðu.
Eigandinn segir jafnframt að parið hafi lokað á símanúmer hennar og síðar einnig annað númer sem hún reyndi að hafa samband við þau úr.

Hvött til að kæra til lögreglu
Færslan vakti viðbrögð meðal meðlima hópsins sem hvöttu eigandann til að kæra málið til lögreglu sem fyrst.
Einn meðlimur skrifaði:
„Þetta er lögreglumál og það strax. Nú er þetta nýtt búið að gerast svo það ætti alveg að vera hægt að hafa upp á þeim. Þau eru pottþétt á bílaleigubíl.“
Annar sagði:
„Ótrúleg svívirða. Nærðu ekki í þetta rusl?? Láttu lögreglu vita, kærðu þetta lið!!“
Þá velti einn meðlimur fyrir sér hvers vegna vatni hefði verið sprautað inn í skápa og spurði hvort um hreina skemmdarfíkn væri að ræða. Við því svaraði annar einfaldlega:
„Geðbilun.“
„Þetta er rétt að byrja“
Sumir sögðu að um sambærileg mál hefði áður verið að ræða í ferðaþjónustunni.
Einn meðlimur hópsins skrifaði:
„Ekki einsdæmi… mörg dæmi um slæma umgengni sem engin myndi trúa ef frásagnir yrðu birtar hér.“
Annar hafði áhyggjur af þróuninni í greininni og sagði:
„Þetta er rétt að byrja. Íslensk ferðaþjónusta næstu árin mun þurfa að vera mjög á varðbergi gagnvart svona svindli og svínaríi.“