Óboðinn gestur gerði sig heimankominn í sveitarfélaginu Tønder í Suður-Danmörku í lok apríl og var fljótlega skotinn. Þarna var um að ræða meindýr sem danskir sérfræðingar í slíkum telja að muni nú sækja að landinu í auknum mæli.
Þetta er fenjabjór, einnig nefndur bjórrotta, sumpbæver á dönsku en Myocastor coypus á latínu, eina dýrið sem heyrir til ættarinnar Myocastoridae. Ekki er þó um eiginlegan bjór að ræða en nagdýr þetta er skylt bjór, heldur sig mest í vötnum og rekur uppruna sinn til Suður-Ameríkulanda.
Hafa loðdýraræktendur flutt fenjabjór til Norður-Ameríku og Evrópu vegna skinns tegundarinnar sem um árabil hefur orðið vart í náttúru og bæjum Hollands og Þýskalands þar sem hún þykir plága.
Geti aukið hættu á flóðum
Að sögn Mortens Elmeros, aðalráðgjafa vistvísindastofnunar Háskólans í Árósum, sem ræðir við danska ríkisútvarpið DR, grefur fenjabjórinn jarðgöng sem geti gert jarðveg lausari í sér en ella auk þess sem hann grafi í bakka ár og lækja sem veiki þá og geti þar með aukið hættuna á að vatnið flæði yfir bakkana.
Kjeld Lautrup meindýraeyðir Tønder segir að fylgst sé með fenjabjór þar sem hann geti vakið ótta hjá fólki en fullvaxið dýr er 40 til 60 sentimetrar að lengd og dýrið, sem fellt var þar í sveitarfélaginu í apríl, vó ellefu kílógrömm.
Hann segir fenjabjór sjaldséðan í Danmörku, að jafnaði séu tvö til þrjú dýr skotin þar ár hvert, en kveðst þó óttast afleiðingarnar taki tegundinni að fjölga í landinu.
Elmeros telur einmitt stefna í það vegna hlýnandi loftslags í heiminum sem geri það að verkum að veturnir séu orðnir mildari í Danmörku. „Það þýðir að við gætum farið að sjá meira af honum [...] Honum hefur fjölgað í Þýskalandi síðustu áratugi og nú má reikna með sókn hans að Danmörku,“ segir ráðgjafinn.