Um klukkan 19 í kvöld barst lögreglu tilkynning um aðila sem hafði fallið í Ölfusá. Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar brugðust við á hæsta forgangi og standa leitar- og björgunaraðgerðir nú yfir. Framangreint kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Féll í Ölfusá