Fékk nýtt tæki­færi með nýra frá mömmu - Vísir

Fékk nýtt tæki­færi með nýra frá mömmu - Vísir

Fékk nýtt tæki­færi með nýra frá mömmu - Vísir

Hann hefur marga fjöruna sopið í gegnum tíðina, missti föður sinn sex ára gamall og gekkst nýlega undir nýrnaígræðslu þar sem mamma hans Olga Sif Guðgeirsdóttir, sem hann kallar rokkstjörnuna sína, gaf honum tækifæri á nýju og betra lífi. Blaðamaður ræddi við Elvar Orra um lífið, áskoranir, þakklætið og gleðina.

Lítið fyrir það sem er leiðinlegt

Elvar Orri er fæddur árið 1997 og alinn upp að mestu í Reykjanesbæ. Hann er í sambúð með Andra Ólafssyni og hefur síðastliðin þrjú ár starfað sem flugþjónn sem hann lýsir sem skemmtilegasta starfi í heimi.

„Það er svo gaman að fá að sjá heiminn og vera alltaf að vinna með nýju fólki. Þessi óreglulega rútína hentar mér ótrúlega vel. Ég er lærður hársnyrtir og starfaði við það um stundarkorn en svo fékk ég sumarvinnu í fluginu og fann mig algjörlega í háloftunum. Þá var bara ekki aftur snúið og stuttu síðar fékk ég fastráðningu.“

Óhefðbunda leiðin hefur alltaf hentað Elvari Orra vel.

„Ég hef aldrei fílað hefðbundinn ramma og ef ég finn mig ekki í einhverju þá hætti ég. Mig langar ekki að festa mig í einhverju sem mér finnst leiðinlegt og allt í einu eru áratugir liðnir.“

Mikill léttir að koma út

Í barnæsku lærði hann fljótt að standa með sér og varð fyrir aðkasti í skólanum.

„Ég er samkynhneigður og kom út þegar ég var um sautján ára gamall. Ég var mikið lagður í einelti sem krakki svona sérstaklega fyrir það að ég ætti að vera hommi. Afneitunin hjá mér var svo mikil að ég bókstaflega vissi það ekki sjálfur fyrr en ég kynntist strák. Það var svona ah já móment,“ segir Elvar Orri og hlær.

Hann telur afneitunina beina afleiðingu af áreitinu.

„Það var stöðugt verið að segja við mig: Þú ert hommi! Það var ekki beint svigrúm fyrir mig til að vinna út úr því sjálfur. En þrátt fyrir þetta hef ég alltaf verið mjög sterkur karakter og fylgt mínu. Ef mig langaði að fara í jakkafötum í skólann þá gerði ég það og var alveg sama hvað öðrum fannst um mig. 

Svo um leið og ég sjálfur vissi að ég væri samkynhneigður þá kom ég út og það var bókstaflega ekkert mál. Ég var svolítið síðastur á vagninn með þetta. 

Ég ætlaði lengi að eignast konu og börn fyrir 25 ára aldur eins og var svolítið stemningin í Keflavík. 

Ég varð svo ekki fyrir neinu áreiti frá samfélaginu eftir að ég kom út. Það hefur aldrei verið neitt tabú á mínu heimili, allir mega vera eins og þeir vilja. En mér finnst ég klárlega verða var við það í dag að umræðan hefur breyst og það er bakslag.“

Við það að koma út segist Elvar Orri loksins hafa kynnst sjálfum sér.

„Það var bara þannig og þetta var gríðarlegur léttir. Í dag er samband mitt við sjálfan mig rosalega gott.“

Var sex ára þegar pabbi hans dó

Fyrstu ár Elvars Orra ólst hann upp á Vogum á Vatnsleysuströnd með foreldrum sínum og tveimur systkinum.

„Ég missti pabba minn þegar ég var sex ára. Hann var að veiða og drukknaði eftir flogakast en pabbi var flogaveikur. Ég var svo ungur en það er búið að fóðra mig af alls konar minningum sem mér líður eins og ég muni eftir. Pabbi er alltaf hluti af mér, hann var bara 32 ára þegar hann lést og ég held rosalega fast í allar minningar af honum og því hver hann var.“

Elvar Orri ásamt Palla pabba hans með pínulitla systur.Aðsend

Við tók krefjandi kafli hjá fjölskyldunni sem hefur samt alltaf staðið þétt saman.

„Mamma var einstæð þriggja barna móðir næstu tíu árin. 

Það er ótrúlegt að hugsa til þess að hún hafi bara verið 27 ára þegar hún missir manninn sinn. Litla systir mín var níu mánaða gömul, ég sex ára og bróðir minn ellefu ára. 

Ég er 29 ára í dag og það er eiginlega klikkað að setja þetta í samhengi við það, mér finnst ég alls ekki gamall en mamma var tveimur árum yngri en ég að díla við allt þetta. Þau voru nýgift með ungabarn.“

„Mamma er rokkstjarna lífs míns“

Það leynir sér ekki hvað mamma Elvars Orra er verðmæt fyrir honum.

„Mamma er rokkstjarna lífs míns, hún er bara algjörlega mögnuð. Svo bara heldur hún áfram að gefa og gefa. Mamma er konan sem lyftir okkur öllum upp, hún mætti gera meira fyrir sjálfa sig en gerir svo sannarlega allt fyrir börnin sín.“

Eina fjölskyldumyndin sem er til af öllum fimm, brúðkaupsdagur mömmu Elvars og Palla pabba og skírnadagur litlu systur hans.Aðsend

Hún átti svo sannarlega eftir að gera mikið fyrir Elvar Orra en eftir grunnskóla byrjaði hann fljótlega að veikjast.

„Þegar ég var á fyrsta ári í framhaldsskóla er ég greindur með anorexíu. Það var blessunarlega á byrjunarstigi og strax gripið inn í. Ég fékk góða aðstoð hjá flottu teymi hjá BUGL og náði mér á strik,“ segir Elvar Orri en hann segir sjúkdóminn hafa þróast mjög ómeðvitað hjá sér.

„Ég var alltaf grannvaxinn og þurfti ekkert að hafa fyrir því eða spá mikið í það. Mér fannst þetta hafa verið mjög ómeðvitað, mamma vill meina að ég hafi verið að neita mér matar en ég fann bara ekki fyrir svengdartilfinningu og ég borðaði mjög lítið. Ég sá ekki að ég væri að vannæra líkamann minn og ég þurfti andlega hjálp.“

Erfitt að komast yfir tilfinninguna að vera sjúklingur

Hálfu ári eftir að Elvar Orri lauk meðferð hjá BUGL greindist hann með streptókokka sem leiða niður í nýrun.

„Eftir að hafa verið í rannsóknum í dágóða stund greinist ég með þennan IgA æðasjúkdóm, sextán ára gamall. Það er svolítið erfitt að vita nákvæmlega hvaðan upptök sjúkdómsins koma en þetta er æðasjúkdómur í líkamanum sem skemmir út frá sér.“

Á þessum tíma var Elvar Orri mjög vansæll, hafði litla sem enga matarlyst, var í mikilli undirþyngd og það var stöðugt að líða yfir hann.

„Ég held að ég muni aldrei komast yfir tilfinninguna að vera sjúklingur en það sem hefur alltaf drifið mig áfram er að muna að þetta er enginn dauðasjúkdómur. 

Ég hef alltaf tileinkað mér hugarfarið að það er einhver þarna úti sem ég að glíma við mikið verri hluti en ég, mér finnst alltaf gott að reyna að setja lífið í þannig samhengi, og það hefur hjálpað mér í gegnum allt.“

Elvar Orri ásamt fjölskyldu sinni en þau standa alltaf þétt saman og eru nánir vinir.Aðsend

Það hefur margt komið upp á lífsleið Elvars Orra. 

„Fyrir utan það að ég missi pabba ungur þurfti ég svo að fara í fóstur í smá tíma sem krakki því ég var svolítill vesenisgaur. Út frá öllu þessu finnst mér ég hafa öðlast þroska og skilja að það eru til verri hlutir en þetta. 

Ég er ungur en á sama tíma er ég búinn að upplifa ótrúlega mikið. Auðvitað hefur allt þetta haft áhrif á mann en samt aldrei þannig að mig langi að grafa mig í holu og hætta að lifa lífinu.“

Kom fljótt í ljós að hann þyrfti nýra

Það er erfitt að koma þessari seiglu í orð sem einkennir Elvar Orra en hann er líka brosmildur með smitandi jákvæðni. Fyrir hann hefur aldrei verið neitt annað í boði en að standa upp og halda áfram.

„Ég horfi á þetta sem verkefni og ég hef alltaf náð að hafa rosalega gaman að tilverunni. Lífið er til þess að lifa því og hafa gaman, það gagnast manni aldrei að hanga í því sem erfitt er.“

Eftir að Elvar Orri greinist með æðasjúkdóminn gefa læknar fljótt til kynna að hann gæti þurft að fara í nýrnagjöf.

„Fyrir rúmum sex árum kemur svo í ljós að sjúkdómurinn er kominn á það stig að ég muni einhvern tíma þurfa að fá ígrætt nýra. Það var alveg áfall en ég var samt auðvitað tilbúinn til þess og var búinn að búa mig undir þetta, það er bara magnað að þetta sé hægt. Svo hef ég verið umkringdur svo dásamlegri fjölskyldu og vinum sem hafa gert allt þetta ferli betra.“

Magnað hve margir buðu sig fram

Leitin að gjafa hófst fyrir ári síðan og byrjaði Elvar Orri á því að ræða við fjölskyldu sína.

„Það er alltaf best að fá frá nánasta blóðskylda aðstandanda upp á erfðaefni, blóðhaginn og allt þetta. Mamma fór strax og lét athuga hvort hún gæti gefið en svo kemur ýmislegt upp á, hún fær þvagfærasýkingu og um stund verðum við svolítið stressuð því ef hún er ekki möguleiki þá gæti þetta orðið erfitt. 

Ég á náttúrulega ekki líffræðilegan pabba sem hefði getað gefið mér nýra en ég verð samt að taka fram að ég á algjörlega frábæran pabba sem kom inn í líf mitt þegar ég var fimmtán ára, sá og sigraði hjörtu okkar. Hann er stoð okkar og stytta og ég get ekki hugsað mér hvar við værum án hans.“

Þegar óvissan stóð sem hæst ákvað Elvar Orri að leita að mögulegum gjafa á Facebook en þá var sjúkdómurinn orðinn slæmur og þetta orðið óumflýjanlegt.

Mamma Elvars Orra er sannkölluð rokkstjarna.Aðsend

„Það var magnað hve margir buðu sig fram til að fara í rannsókn til að geta gefið mér en það er þannig að einungis einn í einu getur farið í gegnum rannsókn, því gekk mamma fyrir og sem betur fer gekk það upp.

Hún var rannsökuð út og inn, gekk undir hátt í þrjátíu rannsóknir yfir þriggja mánaða tímabil. Ég get ekki komið því í orð hvað mamma er góð og hvað hún var mögnuð í þessu ferli. 

Nýrað sem verður eftir hjá henni stækkar og bætir við sig kröftum en hún á aldrei að þurfa finna fyrir því að hún sé bara með eitt nýra og á því að geta lifað eðlilegu lífi þar eftir. Hún fer þó í eftirlit árlega.“

Biðin var óbærileg

Mæðginin hafa gengið í gegnum margt saman og segir Elvar Orri að þessi reynsla hafi gert þau enn nánari.

„Það var svo dýrmætt að hafa hana en á sama tíma var ég líka mjög hræddur við það hvernig allt færi. Hugarfarið hefur samt alltaf verið það að ég hef engra annarra kosta völ. Ég var orðinn það veikur að ég var hættur að vinna. Að eðlisfari er ég mjög lífsglaður og drífandi og elska að vera í kringum fólk þannig það var rosalega krefjandi.“

Aðgerðin gekk vonum framar en fyrstu klukkutímarnir voru hvað mest stressandi.

„Andri minn keyrði okkur á spítalann og við mamma fórum saman. Auðvitað gerði stressið vart við sig og það var smá þungt yfir manni svona að bíða eftir því að dagurinn rynni upp.

Mamma byrjaði í aðgerðinni og á meðan beið ég í hægindastól inni á stofu. Það var langmest krefjandi hluti ferlisins. Á meðan ég beið blossuðu alls konar tilfinningar og hugsanir upp, ég hugsaði bara: „Fokk, hvað ef mamma deyr, hvað ef nýrað hennar virkar svo ekki, hvað ef, hvað ef.““

Hugrökk mæðgin.Aðsend

Blessunarlega gekk allt að óskum.

„Nýrað hennar mömmu byrjaði strax að taka við sér fyrstu klukkutímanna sem eru góð og gild merki. Oft eru fyrstu sólarhringarnir hægir og það getur tekið tíma fyrir nýrað að byrja virka. En í mínu tilfelli var það ekki svoleiðis.“

Eins og eitrið væri farið

Elvar Orri segir tilfinninguna að vakna úr aðgerðinni ólýsanlega.

„Ég bókstaflega vaknaði og fann mun. Það var ekki eins og með eitur innan í mér lengur. Það er ótrúlega skrítin tilfinning til að reyna að útskýra en síðustu mánuðir fyrir aðgerð voru virkilega krefjandi bæði andlega og líkamlega og ég var stöðugt í smá flight or fight fýling.

Mamma var í sólarhring inni á spítala en ég var í fjórar nætur og fyrstu dagana var lögð áhersla á að ég yrði á fótum að ganga um. Með aðstoð hjálpartækja og frábæra sjúkraliða gekk það vel og ég náði að safna kröftum.“

Mæðginin ganga út af spítalanum með sýna sýn á lífið.Aðsend

Í dag er rúmur mánuður frá aðgerð og er lyfjagjöfin stærsta verkefni Elvars Orra.

„Ég er á ónæmisbælandi lyfjum sem ég þarf að taka það sem eftir er lífsins, til að koma í veg fyrir að líkaminn ráðist á nýrað. Ég tek lifin alltaf sama tíma dags tvisvar á dag og þetta er ævilangt verkefni. Fyrstu þrjá mánuði eftir aðgerð eru mestu líkurnar á höfnun og því fer ég vikulega til læknis og það er fylgst vel með öllu.“

Ábyrgð í öðru tækifæri

Hann ber spítalanum bestu þakkir.

„Nýrnaígræðsluteymið, læknar, sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar, allt fólk sem hefur komið að þessu ásamt öllu mínu nánasta fólki, ég get bara ekki þakkað því nógu mikið. Ég tala nú ekki um drottninguna sem er nýrnalæknirinn minn Sunna Snædal, bara vá. Þau eru ómetanleg öll sem eitt.“

Elvar segist sjá þetta sem annað tækifæri á lífið.

„Því fylgir ábyrgð á hverjum degi. Lífið og heilsan, þetta er svo ofboðslega dýrmætt og ég lít allt öðrum augum á þetta í dag. 

Ég reyni að vera ábyrgur og meðvitaður og hugsa vel um mataræði og lífstíl, það er nauðsynlegt og vel þess virði.“

„Besti maður sem ég hef kynnst“

Hann lítur björtum augum til framtíðarinnar með makanum sínum flugumferðarstjóranum Andra, sem er fæddur árið 1991.

„Við kynnumst fyrir rúmum sex árum á Tinder og á þeim tíma ætlaði ég mér ekkert í neitt samband enda nýkominn úr sambandi með strák sem ég kom út úr skápnum með. En þegar ég hitti Andra þá var ekki aftur snúið. 

Hann er besti maður sem ég hef kynnst og allir sem okkur þekkja vita það. Mamma sagði einmitt um daginn bara: Þú átt besta eiginmann heimsins. Ef ég á að vera hreinskilinn held ég að hún taki hann fram yfir mig,“ segir Elvar Orri og skellir upp úr. Andri hefur verið kletturinn hans í þessu erfiða ferli.

Andri hugsar vel um manninn sinn og auðvitað tengdamóður sína.Aðsend

„Þetta hefur auðvitað mjög erfitt fyrir hann, ég held að þetta sé jafnvel meira krefjandi fyrir hann að vera svona á hliðarlínunni og geta ekkert gert nema vera til staðar. Ég held það sé rosalega erfitt fyrir maka að fara í gegnum þetta. 

Við finnum báðir fyrir gríðarlegum létti og hann hefur í raun aldrei þekkt mig við góða heilsu fyrr en núna og við erum rosalega spenntir fyrir komandi tímum. Okkur langar að eignast fjölskyldu, sama í hvaða mynstri það yrði og svo hlakka ég svo ótrúlega mikið til að geta byrjað að vinna aftur.“

Að lokum vill Elvar Orri ítreka það að hann sé alltaf til í að ræða við fólk sem er að glíma við eitthvað svipað og hann.

„Ég vil endilega hvetja fólk til að hafa samband ef það þarf ráð eða bara samtal. Það sem mér fannst algjörlega ómetanlegt í þessu var að geta talað við einhvern sem hafði gengið í gegnum það sama og ég.“

#fékk #með #nýra #nýtt #tækifæri


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262889214d/fekk-nytt-taeki-faeri-med-nyra-fra-mommu

📰 Aðrar fréttir

Fulltrúi á ASÍ þinginu sagður hafa sagt hommabrandara í ræðustól – Líkti Vilhjálmi og Bjarna Ben við persónur úr Brokeback Mountain
📅 16.10.2026 👁️ 2
Fulltrúi á ASÍ þinginu sagður hafa sagt hommabrandara í ræðustól – Líkti Vilhjálmi og Bjarna Ben við persónur úr Brokeback Mountain
Páll Heiðar Magnússon Aadnegard, fulltrúi VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna, á ársþingi ASÍ, er sakaður um fordómafullt tal og hommabrandara á þ...
Lýsa 38 mínútunum eftir skelfinguna á Flateyri: „Við björguðum þarna mannslífi“
📅 16.10.2026 👁️ 2
Lýsa 38 mínútunum eftir skelfinguna á Flateyri: „Við björguðum þarna mannslífi“
„Maður trúði því ekki að þetta gæti gerst. Dagana fyrir var búið að hringja í mig og Ívar líka og spyrja hvort það væri snjóflóðahætta. Við bara; „Nei...
Gert ráð fyrir 200 til 300 krónum í umferðargjöld á háannatíma
📅 16.10.2026 👁️ 2
Gert ráð fyrir 200 til 300 krónum í umferðargjöld á háannatíma
Miðað er við að rukkaðar verði 200 til 300 krónur í flýti og umferðargjöld fyrir umferð um ákveðin svæði innan borgarinnar á háannatíma og 50 eða 100 ...
Vilja opna millistig bráðamóttöku og Læknavaktarinnar
📅 16.10.2026 👁️ 2
Vilja opna millistig bráðamóttöku og Læknavaktarinnar
Litli spítalinn ehf. hefur tekið á leigu neðstu hæðir Háaleitisbrautar 68, sem voru áður að hluta höfuðstöðvar Landsvirkjunar. Ætlunin er að reka marg...
Chris Mason: Burnham and Swinney tussle over where power lies in Scotland
📅 16.10.2026 👁️ 2
Chris Mason: Burnham and Swinney tussle over where power lies in Scotland
UK political debate has a distinctly Scottish feel after SNP's annual conference, says the BBC's political editor Chris Mason.
Sí­fellt fleiri kjósa að fæða án að­komu heilbrigðisstarfsfólks - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
Sí­fellt fleiri kjósa að fæða án að­komu heilbrigðisstarfsfólks - Vísir
Í skýrslu sem var gefin út í morgun kemur fram að í það minnsta tuttugu og þrjár konur á Íslandi hafi á síðustu árum fætt börn án þess að ljósmóðir, l...
Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn - Vísir
Í skýrslu sem var gefin út í morgun kemur fram að í það minnsta tuttugu og þrjár konur á Íslandi hafi á síðustu árum fætt börn án þess að ljósmóðir, l...
Guðmundur er með óskurðtækt heilaæxli en bindur vonir við nýja meðferð – „Við viljum reyna það sem við getum“
📅 16.10.2026 👁️ 2
Guðmundur er með óskurðtækt heilaæxli en bindur vonir við nýja meðferð – „Við viljum reyna það sem við getum“
Þau Kolbrún Eva Ríkharðsdóttir og Guðmundur Ívar Magnússon, sambýlisfólk í Þorlákshöfn, heyja baráttu fyrir því að Guðmundur geti átt meiri tíma með á...
Malfoid flæðir yfir aðdáendur galdrastráksins
📅 16.10.2026 👁️ 2
Malfoid flæðir yfir aðdáendur galdrastráksins
Galdraheimur Harry Potter og félaga gengur nú gegnum endurnýjun lífdaga, um jólin verða frumsýndir nýir þættir þar sem ný kynslóð fær að kynnast galdr...
Haukur hraunar yfir Jón Gnarr: „Rækilega undir beltisstað og fyrir neðan siðgæðiskröfur“
📅 16.10.2026 👁️ 2
Haukur hraunar yfir Jón Gnarr: „Rækilega undir beltisstað og fyrir neðan siðgæðiskröfur“
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur gefur útgöngu Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar falleinkunn og kemur fram með spádóm um hvað muni koma í kjöl...
Flugvél Icelandair beint til Halifax vegna mikils mótvinds
📅 16.10.2026 👁️ 2
Flugvél Icelandair beint til Halifax vegna mikils mótvinds
Flugi Icelandair (ICE825) sem var á leið til Nashville hefur verið beint til Halifax í Kanada vegna mikils mótvinds. Guðni Sigurðsson, upplýsingafullt...
Ætla að sækja flothring af sjókví úr fjörunni við Patreksfjörð í næstu viku
📅 16.10.2026 👁️ 2
Ætla að sækja flothring af sjókví úr fjörunni við Patreksfjörð í næstu viku
Arctic Fish ætlar að fjarlægja sjókví úr fjöru í Patreksfirði í næstu viku eftir rúman mánuð í fjöruborðinu. Reglulega berast tilkynningar til Landhel...
Hand­tekinn fyrir að ausa fúk­yrðum yfir hóp fólks - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 5
Hand­tekinn fyrir að ausa fúk­yrðum yfir hóp fólks - Vísir
Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir í samtali við blaðamann að lögreglunni hafi í gær ...
Katrín Oddsdóttir: Sá að þetta kom ráðherra í opna skjöldu – nema hún sé svona flinkur leikari
📅 16.10.2026 👁️ 4
Katrín Oddsdóttir: Sá að þetta kom ráðherra í opna skjöldu – nema hún sé svona flinkur leikari
Hópurinn sem mótmælir fyrirhuguðu sjókvíaeldi í Seyðisfirði finnur fyrir því að eftir að 13 þúsund undirskriftir gegn framkvæmdinni voru afhentar ráðh...
'Well-known' man asks court to stop publication of sexual offence allegation
📅 16.10.2026 👁️ 3
'Well-known' man asks court to stop publication of sexual offence allegation
The unnamed individual asks London's High Court to prevent the publication of "serious allegations".
Police feared Andrew might delay access by saying his home was King's
📅 16.10.2026 👁️ 3
Police feared Andrew might delay access by saying his home was King's
Legal records have emerged which show why police wanted to search the royal's home and what they were looking for.
Trump rekur fjölmiðlafulltrúa eftir 5 daga í starfi
📅 16.10.2026 👁️ 3
Trump rekur fjölmiðlafulltrúa eftir 5 daga í starfi
Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur rekið Katie Zacharia, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, úr starfi sínu eftir að hún hafði einungis sinnt því í...
Vilja hækka verð á hita á meðan sveitarfélög lofa að hemja verðhækkanir
📅 16.10.2026 👁️ 3
Vilja hækka verð á hita á meðan sveitarfélög lofa að hemja verðhækkanir
Stjórn Norðurorku samþykkti í vikunni að hækka verð á hitaveitu, rafveitu og fráveitu um fimm til sjö prósent. Norðurorka er í eigu sveitarfélaganna v...
Fær tugi milljóna endurgreiddar frá Heimum eftir brunann á Miðhrauni
📅 16.10.2026 👁️ 3
Fær tugi milljóna endurgreiddar frá Heimum eftir brunann á Miðhrauni
Hæstiréttur hefur gert húsfélaginu Miðhrauni 4 að greiða félaginu FF 11 23,5 milljónir króna ásamt dráttarvöxtum vegna ofgreiðslna tryggingafélags FF ...
„Heppni að enginn skyldi kubbast hérna í sundur hreinlega“
📅 16.10.2026 👁️ 3
„Heppni að enginn skyldi kubbast hérna í sundur hreinlega“
Hjónin Ásta Gunna Kristjánsdóttir og Steinarr Steinarsson eiga hús á Siglufirði og hafa átt það í sextán ár. Húsið skemmdist mikið í óveðrinu á miðvik...
James Hetfield lét umdeild ummæli um pólitík falla og fékk það óþvegið frá Roger Waters – „Algjört fífl“
📅 16.10.2026 👁️ 4
James Hetfield lét umdeild ummæli um pólitík falla og fékk það óþvegið frá Roger Waters – „Algjört fífl“
James Hetfield, söngvari bandarísku þungarokkssveitarinnar Metallica, hefur vakið reiði margra með ummælum sínum um pólitík og áhrifavalda. Roger Wate...
Að­gengið gott en gefur ekki upp synjanirnar - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 4
Að­gengið gott en gefur ekki upp synjanirnar - Vísir
Þetta kemur fram í svari ráðherrans við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Diljá spurði hvort ráðherra hefði sett ...
81-year-old woman taken to hospital after rescue at beach in Los Cristianos
📅 16.10.2026 👁️ 4
81-year-old woman taken to hospital after rescue at beach in Los Cristianos
An 81-year-old woman was taken to hospital after being rescued from the sea at Las Vistas beach in Los Cristianos this afternoon, Friday.The emergency...
Tals­maður Trumps rekinn eftir brösug­lega byrjun - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 4
Tals­maður Trumps rekinn eftir brösug­lega byrjun - Vísir
Frá þessu greinir bandaríski miðillinn TMZ en þar segir einnig að hún hafi sinnt starfinu í minna en viku. Zacharia er 42 ára gömul. Hún starfaði í sk...
Inside Ukraine's Operation Vivaldi pushing Russia back on frontline
📅 16.10.2026 👁️ 4
Inside Ukraine's Operation Vivaldi pushing Russia back on frontline
Kyiv says it has recaptured 277 sq km (106 square miles) of territory in the eastern Donbas region in recent months
Fyrirkomulag sem „hljómar náttúrlega galið núna“
📅 16.10.2026 👁️ 4
Fyrirkomulag sem „hljómar náttúrlega galið núna“
Viðbótarfjármagnið sem á að renna til námsgagna er aðeins lítið brot af þeirri innviðaskuld sem ríkir í málaflokknum. Samkvæmt útreikningum sérfræðing...
Frumsýndu á túbusjónvarpi í fullum Viki­vaka - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 4
Frumsýndu á túbusjónvarpi í fullum Viki­vaka - Vísir
„Ég veit um stað“ er nýjasta lag Frumburðar (Orra Starrasonar) af samstarfsplötunni Helgi á Prikinu, sem er gefin út af vegum Sticky Records, en tónli...
Þrengt að sjoppum og skemmti­stöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 4
Þrengt að sjoppum og skemmti­stöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel - Vísir
„Ég veit um stað“ er nýjasta lag Frumburðar (Orra Starrasonar) af samstarfsplötunni Helgi á Prikinu, sem er gefin út af vegum Sticky Records, en tónli...
Orðið á götunni: Mest ánægja með störf Þorgerðar Katrínar – áberandi lítil ánægja með Guðrúnu og Lilju
📅 16.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Mest ánægja með störf Þorgerðar Katrínar – áberandi lítil ánægja með Guðrúnu og Lilju
Í nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið kjósendur Viðreisnar með störf formanns eigin flokks mest allra, en tæplega 96% kjósenda flokksi...
Stórleikkonan með slæm tíðindi af heilsu sinni – „Þetta lítur ekki vel út“
📅 16.10.2026 👁️ 4
Stórleikkonan með slæm tíðindi af heilsu sinni – „Þetta lítur ekki vel út“
Lafði Judi Dench, hin 91 árs gamla stórleikkona, greinir frá hrörnandi heilsu sinni. Hún er næstum orðin blind.Breska blaðið Express greinir frá þessu...
Deilt um sönnunar­gögn og mögu­legan vitorðsmann - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 4
Deilt um sönnunar­gögn og mögu­legan vitorðsmann - Vísir
Deilurnar í dómsal í dag snerust og snúa að miklu leyti um kvartanir lögmanna Murdaugh vegna sönnunargagna. Þeir hafa sakað saksóknara um að draga fæt...
Forstjóri segir að háttsemi Ölgerðarinnar geti skýrt aukna hlutdeild á markaði
📅 16.10.2026 👁️ 4
Forstjóri segir að háttsemi Ölgerðarinnar geti skýrt aukna hlutdeild á markaði
Forstjóri CCEP á Íslandi, Anna Regína Björnsdóttir, segir að fyrirtækið hafi orðið vart við ýmislegt á drykkjarvörumarkaðnum á Íslandi sem hafi vakið ...
Telja stöðu sálfræðiþjónustu á Reykjalundi alvarlega
📅 16.10.2026 👁️ 4
Telja stöðu sálfræðiþjónustu á Reykjalundi alvarlega
Sálfræðingafélag Íslands telur stöðu sálfræðiþjónustu á endurhæfingarmiðstöðinni Reykjalundi alvarlega. Missir á reynslumiklu starfsfólki og langtímav...
Hversu vel fylgist þú með fréttum? Taktu prófið - RÚV.is
📅 16.10.2026 👁️ 4
Hversu vel fylgist þú með fréttum? Taktu prófið - RÚV.is
Hér eru tíu spurningar úr fréttum vikunnar. Veistu hver stofnaði Skims, í hvaða bæ varð mikið eignatjón vegna veðurofsa og hvað eru margir litir í við...
Flintshire: Nurse who stole £750,000 from vulnerable 99-year-old struck off
📅 16.10.2026 👁️ 4
Flintshire: Nurse who stole £750,000 from vulnerable 99-year-old struck off
Rebecca Louise Burwood saw the vulnerable victim "as her nanna" but stole to fund her lifestyle.
„Eigum ekki að bíða eftir al­var­legu at­viki“ - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 4
„Eigum ekki að bíða eftir al­var­legu at­viki“ - Vísir
Vísir fjallaði á miðvikudag um áhyggjur af öryggi nemenda og starfsfólks í skólum Reykjavíkur. Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíku...
Landtökufólk réðst á fjölmiðlakonu við störf
📅 16.10.2026 👁️ 4
Landtökufólk réðst á fjölmiðlakonu við störf
Bandarísk fjölmiðlakona var barin við störf á Vesturbakkanum í Palestínu í dag. Grímuklæddir menn réðust að henni vopnaðir prikum.Heidi Levine var að ...
Óskar eftir tillögum frá stjórnarandstöðunni í deilu um fiskveiðistjórnun
📅 16.10.2026 👁️ 4
Óskar eftir tillögum frá stjórnarandstöðunni í deilu um fiskveiðistjórnun
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur óskað eftir frekara samráði við fulltrúa minnihluta á Alþingi um byggðahluta fiskveiðistjórnunarkerfisins. H...
Bílasali sakaði lögregluna um einelti - „Abbast upp á friðsaman og löghlýðinn borgara“
📅 16.10.2026 👁️ 4
Bílasali sakaði lögregluna um einelti - „Abbast upp á friðsaman og löghlýðinn borgara“
Nefnd um eftirlit með lögreglu mun ekki aðhafast frekar vegna kvörtunar forsvarsmanns ónefndrar bílasölu yfir starfsháttum lögreglunnar á höfuðborgars...
Inside Ukrainian offensive pushing Russia back - with Starlink playing a key role
📅 16.10.2026 👁️ 4
Inside Ukrainian offensive pushing Russia back - with Starlink playing a key role
The BBC joins Ukraine's Operation Vivaldi as it regains crucial territory in the Donbas, but optimism has been dampened by souring relations with Pres...
Will Ukraine get the support needed as tensions with US rise?
📅 16.10.2026 👁️ 2
Will Ukraine get the support needed as tensions with US rise?
Zelensky thanked the "real leaders" ahead of a meeting with the EU in Brussels.
Körlum bannaður aðgangur að rýmum fyrir konur innan breska heilbrigðiskerfisins (NHS)
📅 16.10.2026 👁️ 4
Körlum bannaður aðgangur að rýmum fyrir konur innan breska heilbrigðiskerfisins (NHS)
Körlum bannaður aðgangur að rýmum fyrir konur innan breska heilbrigðiskerfisins (NHS) Fréttin16. október 2026Erlent, Helga Dögg Sverrisdóttir, Kynjamá...
Norð­maður í tuttugu ára fangelsi í Bret­landi vegna leigumorðs - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 4
Norð­maður í tuttugu ára fangelsi í Bret­landi vegna leigumorðs - Vísir
Johannes Natland var átján ára ára gamall þegar hann var tekinn fastur á hóteli í Huddersfield í Vestur-Jórvíkurskíri á Englandi í mars í fyrra. Á her...
Jafnlaunavottunin af­numin en starfs­fólkinu fækkar ekki - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 4
Jafnlaunavottunin af­numin en starfs­fólkinu fækkar ekki - Vísir
„Viðreisn hefur haft hátt um að hagræða hjá ríkinu en svo gefst dauðafæri og þá er ekkert gert,“ segir Diljá við fréttastofu.  Hún vísar þar til skrif...
Tiger attack medical records may have been breached
📅 16.10.2026 👁️ 4
Tiger attack medical records may have been breached
William Chapman, 24, was mauled to death at Yorkshire Wildlife Park on Saturday.
Tiger attack victim's medical records may have been breached
📅 16.10.2026 👁️ 4
Tiger attack victim's medical records may have been breached
William Chapman, 24, was mauled to death at Yorkshire Wildlife Park, near Doncaster, on Saturday.
Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 4
Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs - Vísir
Hinn 77 ára Billy Joel greindi frá því á síðasta ári að hann hefði greinst með heilakvillann fullorðinsvatnshöfuð. Píanómaðurinn var í viðtali hjá Hol...
„Risastór, hvítur snjóveggur og allt í einu skall hann á glugganum hjá mér“
📅 16.10.2026 👁️ 4
„Risastór, hvítur snjóveggur og allt í einu skall hann á glugganum hjá mér“
„Maður trúði eiginlega ekki að þetta gæti gerst,“ sagði björgunarsveitarmaðurinn Magnús Einar Magnússon í Morgunútvarpinu á Rás 2 um snjóflóð sem féll...
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
📅 16.10.2026 👁️ 4
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn Þór SaariEr fyrrverandi þingmaður Mynd: Þór Saari/Facebook Þór Saari, fyrrverandi þingmaður Hre...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Árangursrík stjórnsýsla veitir atvinnulífinu skilvirka þjónustu
📅 16.10.2026 👁️ 4
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Árangursrík stjórnsýsla veitir atvinnulífinu skilvirka þjónustu
Hversu mörg ný fyrirtæki og verðmæt störf verða aldrei til á Íslandi vegna flókinna reglna, óþarfa tafa og óskilvirkrar stjórnsýslu?Þetta er spurning ...