Mikhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, sem var leystur frá störfum í síðustu viku, hefur hafnað tilboði Volodymyrs Zelenskys Úkraínuforseta um nýtt hlutverk í ríkisstjórn landsins.
Fjölmenn mótmæli hafa verið í landinu vegna brottvikningar hans. Þúsundir hafa mótmælt ákvörðuninni og skipuleggjendur þeirra hvöttu til frekari mótmæla og kröfðust þess að Fedorov yrði settur aftur í embætti varnarmálaráðherra.
Fedorov sagðist í tilkynningu til fjölmiðla einungis samþykkja að fá gamla starfið sitt aftur.
„Ég ætla ekki að samþykkja neina aðra stöðu en varnarmálaráðherra. Ekkert annað hlutverk hefur raunverulegt vald til að berjast gegn spillingu, ljúka við umbreytingu hersins, skipuleggja og hrinda í framkvæmd herferðum gegn óvininum og uppræta lygamenningu og ábyrgðarleysi innan kerfisins.“
Zelensky rak Oleksandr Syrsky, yfirmann úkraínska hersins, fyrr í vikunni eftir kröfur mótmælenda og réð Mykhailo Drapaty, bandamann Fedorov og umbótamann. Samband Fedorovs og Syrsky var stirt og er það talin ástæða þess að forsetinn vék Fedorov úr ríkisstjórninni.
Evgeniy Khmara er starfandi varnarmálaráðherra og Zelensky hefur neitað að bjóða Fedorov gamla starfið sitt aftur.
Fedorov hefur lengið verið stuðningsmaður Zelenskys og unnið með honum síðan hann varð forseti 2019. Hann ávann sér aðdáendur innan og utan hersins fyrir snemmbúinn áhuga á drónum, löngu áður en ljóst var að þeir myndu breyta stríðinu sem hefur geisað í rúmlega fjögur ár.