Leigubílstjóri var fluttur á slysadeild á mánudagskvöld eftir að hafa verið stunginn með hnífi af farþega bifreiðarinnar. Bílstjórinn hefur verið útskrifaður af spítala og farþeginn vistaður á viðeigandi stofnun.
Þetta segir Bylgja Hrönn Baldursdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar, í samtali við mbl.is. Mennirnir séu báðir íslenskir.
Ekki liggur fyrir hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir manninum.
Lífshættuleg atlaga
Spurð hvort bílstjórinn hafi á einhverjum tímapunkti verið í lífshættu segir Bylgja að um „lífhættulega atlögu“ hafi verið að ræða þó að farið hafi vel.
Þá kvaðst hún ekki vita á vegum hvaða fyrirtækis leigubíllinn væri.