Farþegaþota ungverska lággjaldaflugfélagsins Wizz air, á leið frá Varsjá til Keflavíkur, sneri við á laugardag þegar hún var rétt ókomin á áfangastað.
Þotan var á flugi yfir Vestmannaeyjum á laugardaginn þegar farþegum um borð var tilkynnt að vélin næði ekki að lenda vegna veðurs.
Var þá haldið til Glasgow í Skotlandi þar sem fyllt var á eldsneyti og svo þaðan aftur til Varsjár.
Aðrar þotur lentu
Í Glasgow var fólki sagt að það mætti yfirgefa vélina ef það vildi en farangurinn myndi engu að síður fara til Varsjár.
„Fólk var mjög ósátt, sérstaklega þegar við tékkuðum á heimasíðu Keflavíkurflugvallar og sáum að öll önnur flug, bæði fyrir og eftir, höfðu lent,“ segir Kristófer Arnar Júlíusson, einn farþega, í samtali við mbl.is.
Hann segir það hafa tekið um klukkutíma að fylla á eldsneyti vélarinnar í Glasgow en flugið þangað eru tæpir tveir tímar.
„Og við fengum ekkert á meðan, oftast ef það er vesen í flugvélum er boðið upp á vatn eða eitthvað. En það var ekkert gefið, ekkert vatn, engar upplýsingar, það voru grátandi börn úti um allt og fólk bara orðið stressað og því leið illa eftir að hafa setið svona lengi í vélinni,“ segir hann.
Lítið um svör
Þegar komið var til Glasgow var sendur hlekkur á fólk í tölvupósti þar sem hægt var að endurbóka miðann sinn.
„Allir ýttu á hlekkinn en hann virkaði ekki þannig að enginn gat endurbókað miðann sinn.“
Hann segir farþega hafa safnast saman við upplýsingaskrifborð flugvallarins þar sem lítið var um svör. Fór það svo að vopnaðir verðir voru kallaðir til til að stilla til friðar.
Engin skýring fékkst
Hann segir einn farþega vélarinnar hafa náð sambandi við flugturn Keflavíkurflugvallar þar sem honum var sagt að flugmaður vélarinnar hefði einfaldlega ekki treyst sér til að lenda vélinni í þessu veðri.
„Við fengum samt enga skýringu á því hvers vegna flugmaðurinn treysti sér ekki til að lenda vélinni. Hann reyndi það ekki einu sinni,“ segir Barbara Beata Dzik, unnusta Kristófers sem var með honum um borð í vélinni.
Hún segir flugmann vélarinnar hafa sýnt fólkinu hroka og ekki viljað svara spurningum þess.
Fréttin hefur verið uppfærð:
Í upphaflegri frétt var ranglega haft eftir Kristófer að það hefði tekið þrjá tíma að fylla á eldsneytið í Glasgow.
