Dómsmálaráðherra segir fáránlegt að Rússar geti komið til Evrópu í frí. Hún er meðal ráðherra ellefu Evrópuríkja sem hvetur ESB til að herða reglur um vegabréfsáritanir til Rússa.
„Við erum einfaldlega að benda á það að það það er óásættanlegt, mér finnst það fáránlegt satt að segja, að rússneskir ríkisborgarar geti verið að ferðast til Evrópu í frí, til Evrópu í verslunarferðir, á meðan fólk í Úkraínu er að verja líf sitt og frelsi gegn stríði Rússa,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Í bréfinu sem ráðherrarnir afhentu Kaju Kallas, utanríkismálaráðherra ESB, í gær, er sambandið hvatt til að herða og samræma reglur um útgáfu vegabréfsáritana til Rússa.
„Framkvæmdin er misjöfn milli ríkja, en þegar menn eru komnir inn á Schengen-svæðið þá eru þeir með áritun inn á svæðið allt,“ segir Þorbjörg.
Hún segir hálfa milljón Schengen-vegabréfsáritana hafa verið gefnar út til Rússa í fyrra og löngu tímabært að takmarka ferðafrelsi þeirra.
„Við erum að tala um það að standa með Úkraínu og allan þann hátt sem hægt er og mér finnst þetta mjög eðlilegt skref og raunar óeðlilegt að þetta skref sé hafi ekki verið tekið.“
Þorbjörg er stödd í Lúxemborg á fundi innanríkisráðherra ESB-ríkjanna og Schengen-ríkja sem standa utan ESB.
„Ég tók til máls á fundinum áðan og lýsti yfir stuðningi við þetta frumkvæði og framtak Svía og ég skrifa undir þetta bréf. Við gerum það ráðherrar Norðurlandanna saman, og hvatti til þess að önnur ríki myndu stíga þetta skref jafnframt.“