Farið hefur verið fram á nauðungarsölu á lóðinni Bjarkarholt 32-34 í Mosfellsbæ sem er í eigu félagsins Render Centium. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, er annar eigenda félagsins.
Frá þessu er greint í Heimildinni í dag. Þar segir Bergþór að verið sé að vinna í málinu og hann á ekki von á að af nauðungarsölunni verði. Hann segist hvorki vera á launum hjá félaginu né hafa fengið arð greiddan.
Nauðungarsalan var auglýst í Lögbirtingablaðinu 2. júlí. Þar kom fram að Efniviður ehf., fyrirtæki sem fæst við leigu atvinnuhúsnæðis, og Arion banki fóru fram á nauðungarsöluna. Hún vegna krafna upp á 981 milljón króna.
Samkvæmt Heimildinni stóð til að reisa hjúkrunarheimili á lóðinni í samvinnu við Eir og Mosfellsbæ en frá því var fallið fyrr á þessu ári.
Render Centium er skráð í atvinnuflokknum bygging íbúðar- og atvinnuhúsnæðis.
Bergþór er skráður sem raunverulegur eigandi helmings hlutafjár í Render Centium í fyrirtækjaskrá Skattsins á móti Óla Jóni Gunnarssyni, föður sínum. Eignarhald þeirra er skráð sem óbeint eignarhald með óbeinu atkvæðavægi. Eignarhaldið er í gegnum móðurfélagið Byggingarlausnir, að því er Bergþór segir í viðtali við Heimildina.