Nepalskur fjallaleiðsögumaður sem var týndur á Everest-fjalli í sex daga og óttast var að væri látinn hefur fundist á lífi eftir að hafa skriðið aftur í grunnbúðir.
Hinn reyndi Hillary Dawa Sherpa hvarf í efri hlíðum hæsta fjalls heims snemma þann 30. maí. Hann fannst í morgun nálægt grunnbúðum af Sagarmatha Pollution Control, nepölsku teymi sem hjálpar til við að leggja leiðir á Everest og hreinsa upp úrgang sem skilinn er eftir.
„Hann var að skríða niður,“ sagði Pemba Sherpa frá 8K Expeditions, sem hafði yfirumsjón með leit og björgun, við AFP-fréttaveituna og bætti við að þyrla hafi verið send til að flytja hann á sjúkrahús í Katmandú.
Fjallgöngumaðurinn Chris Thrall, fyrrverandi breskur landgönguliði, sagðist hafa náð toppi hins 8.849 metra háa fjalls með Sherpa þann 29. maí.
Yfir þúsund náðu toppi Everest á tímabilinu
Hann birti myndbandsskilaboð á Instagram á miðvikudaginn þar sem hann syrgði það sem hann taldi vera andlát Sherpa.
Göngutímabilinu á Everest er lokið en meira en þúsund fjallgöngumenn náðu toppi Everest á tímabilinu, samkvæmt fyrstu tölum frá nepölskum yfirvöldum, sem gerir það að fjölmennasta tímabili í sögunni. Að minnsta kosti fimm manns hafa látist á þessu tímabili.
