„Fáið ykkur lögfræðing,“ skrifaði Robert Garcia, demókrati frá Kaliforníu, á X á kosninganótt þegar ljóst varð að demókratar hefðu náð meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Færslan birtist um klukkan 22:18 að staðartíma í Washington á þriðjudagskvöld, eftir að kjörstöðum hafði verið lokað víðast hvar. Sömu tvö orð sendi skrifstofa hans út sem formlega yfirlýsingu.
LAWYER UP.
— Congressman Robert Garcia (@RepRobertGarcia) 4. nóvember 2026
Garcia er í dag æðsti demókratinn í eftirlitsnefnd fulltrúadeildarinnar og verður formaður hennar þegar nýtt þing kemur saman í janúar. Með meirihluta fá demókratar formennsku í nefndunum og þar með vald til að boða til yfirheyrslna og stefna vitnum til að bera vitni og afhenda gögn.
„Ef ég hefði verið á kjörseðlinum hefðum við unnið stórsigur“ – Trump kennir öðrum um ósigurinn
Opinberar yfirheyrslur um Epstein-skjölin
Samkvæmt ABC News vill Garcia halda opinberar yfirheyrslur um Epstein-skjölin í stað þeirra viðtala sem fóru fram fyrir luktum dyrum á meðan repúblikanar réðu nefndinni. Hann hefur sagt að hann vilji stefna Todd Blanche dómsmálaráðherra vegna meðferðar ráðuneytisins á skjölunum og þeirra blaðsíðna sem var haldið eftir.
Garcia vill einnig yfirheyra Jared Kushner, tengdason Trumps, og fleiri úr fjölskyldu forsetans um viðskipti þeirra. Kushner hefur ítrekað neitað því að hafa gert nokkuð rangt. Á listanum eru líka framganga innflytjendaeftirlitsins ICE og fyrirtæki sem gáfu fé til nýja danssalarins í Hvíta húsinu.
Fyrir kosningarnar gagnrýndi Garcia Blanche á X og sagði að ráðherrann hefði fullyrt að engin leynileg Epstein-skjöl vantaði, en nú segði CBS hið gagnstæða. „Hverju öðru heldur dómsmálaráðuneytið frá þinginu og almenningi? Það er kominn tími til að birta öll Epstein-skjölin og ná fram réttlæti fyrir þolendurna,“ skrifaði hann.
Raskin beinir sjónum að dómsmálaráðuneytinu
Jamie Raskin, æðsti demókratinn í dómsmálanefnd fulltrúadeildarinnar og verðandi formaður hennar, ætlar að rannsaka það sem hann kallar pólitíska misnotkun dómsmálaráðuneytisins og FBI. Þar á meðal eru tilraunir til að sækja til saka meinta pólitíska andstæðinga Trumps, eins og James Comey, fyrrverandi forstjóra FBI, Letitiu James, ríkissaksóknara New York, og John Brennan, fyrrverandi forstjóra CIA.
Raskin sakar stjórn Trumps um að náðanir hafi gengið kaupum og sölum og ætlar að rannsaka það. Stjórnin hefur ekki viðurkennt neitt slíkt. Blanche vísaði ásökunum demókrata á bug fyrir þingnefnd í júní. „Stjórnarskráin veitir forseta Bandaríkjanna náðunarvaldið. Hún krefst þess ekki að hann útskýri hverja hann velur að náða eða ekki náða,“ sagði Blanche samkvæmt ABC News.
Í yfirlýsingu til MS NOW sagði Raskin að eftirlitið yrði aukið á nýju þingi. „Við erum nú þegar með öflugan hóp rannsakenda og reyndra lögmanna í þessari vinnu og sú geta mun aukast verulega í meirihlutanum,“ sagði hann. Á kosninganótt vitnaði Raskin í Thomas Paine á X.
„Tyranny, like hell, is not easily conquered, but we have this consolation: The more difficult the struggle, the more glorious in the end will be our victory.“ -Tom Paine
— Rep. Jamie Raskin (@RepRaskin) 4. nóvember 2026
Hvíta húsið býr sig undir átök
Hvíta húsið svaraði orðum Garcia ekki beint. Samkvæmt New York Post hefur það fjölgað lögmönnum á skrifstofu lögfræðiráðgjafa forsetans. Í ágúst komst lögfræðiskrifstofa dómsmálaráðuneytisins að þeirri niðurstöðu að trúnaðarréttur forseta geti náð til samskipta hans við ráðgjafa utan stjórnkerfisins, sem gæti gert demókrötum erfiðara fyrir.
Hakeem Jeffries, leiðtogi demókrata í fulltrúadeildinni, hefur ekki útilokað ákæru til embættismissis en heldur ekki lýst yfir stuðningi við hana. Fyrsta atkvæðagreiðslan um ákæru á hendur Pete Hegseth varnarmálaráðherra er á dagskrá þegar þingið kemur aftur saman fyrir áramót, að því er MS NOW greinir frá.