Um fimmtíu lögfræðingar í Helsinki og nágrenni gerðu sér glaðan dag í sendiráði Finnlands á miðvikudag þar sem Jónsbók kynnti þjónustu sína.
Harald Aspelund, sendiherra Íslands í Finnlandi, tók á móti lögmönnum og öðrum lögfræðingum, kynnti Jónsbók til leiks, auk þess sem hann kynnti listasýningu eftir Rúrí, sem nú stendur yfir í sendiráðinu.
Thelma Christel Kristjánsdóttir einn stofnandi Jónsbókar segir viðtökurnar í Finnlandi hafa gengið vonum framar.
„Við sjáum að það er greinilega markaður fyrir lausn Jónsbókar utan landsteinanna, sér í lagi í löndum á borð við Finnland og Ungverjaland þar sem tungumál og réttarkerfi auka flækjustig. Þar höfum við forskot á risana á markaðnum,“ sagði hún við fréttastofu.
„Við erum afskaplega þakklát fyrir viðtökurnar og höldum ótrauð áfram að kynna Jónsbók fyrir lögfræðingum utan landsteinanna.“