Fáar íbúðir hafa selst með sameignarfyrirkomulagi en sameignarsjóðir eiga hlut í 44 íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Fermetraverð íbúða sem selst hafa með fyrirkomulaginu er sambærilegt öðrum íbúðum.
Þetta kemur fram á vef HMS.
„Tíu mánuðir eru nú liðnir frá því að svokallað sameignarfyrirkomulag var fyrst kynnt til sögunnar hér á landi. Þar bjóðast fjárfestingasjóðir á vegum byggingarfyrirtækja til að taka þátt í kaupum einstaklinga á nýjum íbúðum úr eigin smiðju byggingaraðilanna,“ segir á vef HMS.
Fimm fjárfestingasjóðir eiga 44 íbúðir
Í upphafi mánaðarins áttu fimm fjárfestingarsjóðir á vegum byggingaverktaka hlut í 44 íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Flestar þeirra eru í Garðabæ, 43 prósent, og í Hafnarfirði, 41 prósent. 16 prósent íbúðanna eru í Reykjavík.
Meirihluti íbúða sem fjárfestingarsjóðirnir eiga hlut í voru byggðar árið 2025 en kaupendum standa einungis nýjar íbúðir til boða með sameignarfyrirkomulagi.
Mikill meirihluti íbúðanna er á bilinu 70 til 99 fermetrar að stærð. Fimmtungur er á bilinu 100 til 129 fermetrar, færri eru minni en 70 fermetrar og fæstar eru 130 fermetrar eða stærri.
Meðalkaupverð 79 milljónir króna
Kaupverð íbúðanna sem sameignarsjóðirnir eiga hlut í hefur verið á bilinu 59 til 119 milljónir króna, en meðalkaupverðið hefur verið um 79 milljónir króna. Fermetraverð hefur verið á bilinu 680 þúsund til 1,1 milljón króna. Helmingur íbúðanna hefur selst á fermetraverði á bilinu 900 til 999 þúsund krónur.
Þinglýstum kaupsamningum í maí fækkaði milli ára. 780 kaupsamningum var þinglýst í maí sem er fækkun frá sama mánuði síðasta áratug að undanskildu árinu 2023 þegar kaupsamningar voru 731.
Meirihluti kaupsamninga í mánuðinum vörðuðu íbúðir á höfuðborgarsvæðinu eða 62 prósent. Það er í samræmi við dreifingu íbúðastokksins eftir landsvæðum. Samningum fækkaði þó um 5 prósent milli mánaða á höfuðborgarsvæðinu en fjölgað'i um 17 prósent í nágrenni og um 12 prósent annars staðar á landsbyggðinni á sama tíma.