Stjórnvöld í Venesúela fá 346 milljóna dala lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til uppbyggingar í landinu eftir jarðskjálftana. Lánið verður nýtt til að útvega fólki húsnæði, uppbyggingu innviða, nauðsynlega þjónustu og til að sinna öðrum þörfum íbúa landsins sagði Delcy Rodriguez, settur forseti, í færslu á Telegram.
Yfirvöld í Venesúela hafa staðfest að 5.069 fórust og 16.740 slösuðust í jarðskjálftunum. Yfir 20.000 manns eru heimilislausir og hafast við í tjaldbúðum margir við slæmar aðstæður.
Kristalina Georgieva, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að búið sé að veita lánið.
Venesúela á sérstök dráttarréttindi hjá sjóðnum, sem jafngildir um 5,1 milljarði bandaríkjadala. Landið missti þó réttindin um tíma því sjóðurinn viðurkenndi ekki Nicolas Maduro sem forseta og samskipti milli stjórnvalda í Venesúela og sjóðsins voru sett á ís árið 2019.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Alþjóðabankinn tilkynntu síðan í apríl að samskipti við landið yrðu tekin upp að nýju eftir að Bandaríkin steyptu Nicolas Maduro af stóli.