Róbert Elís Hlynsson skoraði tvívegis fyrir ÍBV þegar liðið tók á móti Keflavík í 9. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í Vestmannaeyjum í dag.
Leiknum lauk með stórsigri ÍBV, 6:1, en Róbert Elí kom Eyjamönnum yfir strax á 14. mínútu.
Fyrir leik dagsins höfðu Eyjamenn gert tvö jafntefli og voru í neðsta sæti deildarinnar en liðið er með fimm stig í ellefta og næstneðsta sætinu.
Eyjamenn komust í 4:0
Keflavík er hins vegar með 11 stig í sjöunda sætinu, stigi frá sæti í efri hlutanum, en Keflvíkingar voru ósigraðir í síðustu þremur leikjum sínum fyrir leik dagsins, og höfðu fengið sjö af níu stigum mögulegum úr þeim.
Halldór Jón Sigurður Þórðarson tvöfaldaði forystu Eyjamanna á 39. mínútu, Alex Freyr Hilmarsson bætti við þriðja markinu á 49. mínútu og Milan Tomoc skoraði fjórða markið tveimur mínútum síðar.
Muhamed Alghoul minnkaði muninn fyrir Keflavík á 61. mínútu áður en Róbert Elís bætti við fimmta markinu á 67. mínútu. Omar Sowe innsiglaði svo sigur Eyjamanna með marki á 85. mínútu.