Sprengingin sem gereyddi New Glenn-eldflaug Blue Origin í gær er mikið áfall fyrir geimferðafyrirtækið og NASA, sem vinna saman að undirbúningi fyrirhugaðra tunglferða. Eldflaugin volduga er í hjarta Artemis-áætlunarinnar og gæti haft áhrif á næstu skref hennar.
Jared Isaacman forstjóri NASA fyrirskipaði umsvifalaust ítarlegri rannsókn á þessu mikla fráviki sem gerðist meðan verið var að undirbúa flaugina fyrir tilraunaskot frá Canaveral-höfða og prófa kveikibúnað hennar.
Engan sakaði en flaugin leystist upp í frumeindir og skotpallurinn skemmdist verulega. Algengt er að eitthvað bregði út af við prófanir en jafngríðarlegar sprengingar eru mjög fátíðar.
Sprengingin setur líka strik í reikninginn fyrir Amazon Leo-gervihnattaáætlun Jeff Bezos, eiganda Blue Origin, sem ætlað er að keppa við Starlink-kerfi Elons Musk, eiganda SpaceX. Blue Origin hefur ekki enn viljað tjá sig í hörgul um tilvikið sjálft, hversu mikið tjónið er eða um yfirstandandi rannsókn á vegum NASA og geimhers Bandaríkjanna.
Bannað er að nota New Glenn meðan rannsóknin stendur yfir. Mike Haridopolos, þingmaður fyrir Flórída, segir að langan tíma taka að endurbyggja skotpallinn.
NASA hefur einnig samið við SpaceX um hönnun og smíði lendingarferju til að flytja menn og búnað til tunglsins. SpaceX hefur einnig glímt við margvísleg vandkvæði undanfarna mánuði, sem ásamt atvikinu í gær gæti tafið mannaðar ferðir NASA til tunglsins sem fyrirhugaðar eru fyrir árslok 2028.