Þá er ég búin að spæna mig í gegnum heimildarþættina um Kylie Minogue á Netflix, og ég get svo sannarlega mælt með þeim við alla þá sem hafa einhvern smá áhuga á þeirri drottningu.
Það er farið vítt og breytt yfir ævi hennar sem hefur verið litrík og skemmtileg, en það sem mér finnst eiginlega vera fallegast í þessum þáttum er þegar söngvarinn og drungalegi rokkarinn Nick Cave kom óvænt inn í líf hennar. Michael Hutchence, fyrrverandi kærasti Kylie, og jafnframt eini maðurinn sem Kylie hefur elskað, sagði við Kylie að vinur hennar Nick Cave vildi gera lag með henni. Kylie segist ekki hafa haft hugmynd um hver Nick hafi verið en sagt strax já. Það var eitthvað við það hvernig Nick lýsti þeirra fyrstu samverustund sem kom við streng.
Nick segir að myrkrið hafi alltaf umlukið hann, á sviði, af sviði og í kringum aðdáendur sína. En svo kynntist hann Kylie, en dúettinn þeirra var einn sá óvæntasti í poppsögunni.
Lagið „Where the wild roses“ varð til og Nick lýsti því þegar Kylie hafi fyrst mætt í stúdíó og það hafi í raun verið í fyrsta sinn sem hann hafi séð ljós og birtu í lífi sínu í langan tíma. Og það var allt Kylie. Kylie hafi komið með „force of light“ inn í líf hans og þegar hann fór á svið með henni sá hann lífið í aðeins bjartari litum og fallegra ljósi.
Síðan þá hefur vinskapur þeirra haldist og þau eiga ótrúlega fallega vináttu eftir öll þessi ár. Kylie segir einmitt að það hafi verið drungalega rokkaranum að þakka að hún leitaði aftur í að gera alvöru popptónlist, þegar ferill hennar var kominn á slæman stað. Það var hann sem hvatti hana áfram í poppið, sem hún segir að hafi verið smá fyndið, því enginn var drungalegri rokkari en Nick.
En þetta lag, „Where the wild roses“ ... litla gæsahúðin. Ég var búin að gleyma því en er búin að spila það um það bil 36x síðan í gærkvöldi.
Ég mæli með Kylie!!!
Stjörnufréttir Evu Ruzu eru í samvinnu við Extra og Sjónvarp Símans!