Evrópusambandið hefur sektað Google um 890 milljónir evra, jafnvirði tæpra 130 milljarða króna, fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Fyrirtækið er sakað um að hafa með ólöglegum hætti forgangsraðað eigin vöruframboði fram yfir vörur keppinauta.
Sektirnar eru í raun tvær.
Önnur hljóðar upp á 460 milljónir evra fyrir að hafa með ólöglegum hætti forgangsraðað þjónustu fyrirtækisins sjálfs, til dæmis Google Flights og Google Hotels, fram yfir þjónustu annarra fyrirtækja í leitarniðurstöðum.
Hin sektin hljóðar upp á 430 milljónir evra, þar sem Google heimilaði ekki framleiðendum smáforrita að bjóða notendum forrita upp á þjónustu og tilboð sem væru aðgengileg utan Google Play Store, smáforritaveitu Google.
„Með þessari ákvörðun viljum við ganga úr skugga um að það sé virkari samkeppni og að önnur fyrirtæki geti stundað nýsköpun,“ segir Henna Virkkunen sem fer með tæknimálefni innan framkvæmdastjórnar ESB.
Ákvörðunin er ekki til þess fallin að draga úr spennu milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur áður sakað ESB um að beina spjótum sínum með ósanngjörnum hætti að bandarískum tæknifyrirtækjum. Þá hefur hann áður hótað því að bregðast við sektum ESB með tollum.